Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 113 e fol.

Íslendingabók ; Ísland, 1650-1686

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-7v)
Íslendingabók
Titill í handriti

Schedæ Ara prests fróða

Vensl

Byggt á AM 113 a fol.

Tungumál textans
íslenska
1.1 (1r-1r)
Formáli
Upphaf

[Í]slendingabók gjörða eg fyrst biskupum vorum …

Niðurlag

… að öllum Norvegi.

Athugasemd

Fyrir neðan formálann og á undan meginmálinu er yfirlit yfir efni bókarinnar.

Efnisorð
1.2 (1r-7r)
Um Íslandsbyggð
Titill í handriti

Incipit libellus Islandorum.

Upphaf

[Í]sland byggðist fyrst úr Norvegi á dögum Haralds hins hárfagra Halfdanarsonar …

Niðurlag

… Hér lýkst sjá bók.

Efnisorð
1.3 (7r-7v)
Ættartölur
Efnisorð
1.3.1 (7r)
Kyn biskupa Íslendinga og ættartala
Titill í handriti

Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala

Upphaf

Ketilbjörn landnámsmaður …

Niðurlag

… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.

Efnisorð
1.3.2 (7r-7v)
Nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga
Titill í handriti

Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga

Upphaf

Ingvi Tyrkjakonungur …

Niðurlag

… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki (Amsterdam) // Ekkert mótmerki ( 2, 5, 8). Blað 8 er saurblað aftast í handriti. (Skjaldarmerkið er skýrast á blaði 8).

Blaðfjöldi
i + 8 + i blað (297 mm x 200 mm). Blað 7v er autt að hálfu; blað 8 er autt.
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking, 1-7.

Kveraskipan

3 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • II: bl. 1-8 (4 tvinn: 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 237-240 mm x 140 mm
  • Línufjöldi er ca 32.
  • Eyður fyrir upphafsstafi, (2-4 línur).
  • Leturflötur er afmarkaður með þurroddi.

Ástand

  • Bl. 1r og 8v eru dekkri.
  • Það er brotalína, eins og blöðin hafi verið brotin saman.
  • Bleksmitun.
  • Það er vatnsblettur á efra ytra horni allra blaða, einnig saurblaða. (Svipaðan blett má sjá á efra horni jaðars í AM 113 f fol. og AM 113 d fol.).
  • Á bl. 8v er rauður blettur, sennilega frá innsigli.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, skrifari er óþekktur; kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Athugasemd efst á blaði 1r með hendi Árna Magnússonar frá um 1720: Collatum cum manu Pauli Ketillii i quere i 4to Guðmundar Þorleifssonar.
  • Spássíugrein úr AM 113 i fol., um fæðingu og andlát Ara fróða, skrifuð upp á spássíu blaðs 1r með hendi Þórðar Þórðarsonar. Hönd hans bregður einnig fyrir í lok handritsins (sjá blað 7v).
  • Lesbrigði og leiðréttingar til táknrétts samræmis við uppskrift úr AM 113 i fol. með hendi Árna Magnússonar frá um 1720.
  • Leiðréttingar á spássíum og á milli lína (sjá til dæmis 4v-5r).

Band

Pappaband frá 1772-1780 (294 mm x 200 mm x 4 mm). Safnmark og titill eru á fremra kápuspjaldi; blár safnmarksmiði á kili.

  • Handritið er í öskju með AM 113 b-k fol.

Fylgigögn

  • Fastur seðill með hendi Árna Magnússonar er á milli saurblaðs 1v og blaðs 1r (212 mm x 166 mm): Þessar Schedas sendi mér Grímur Einarsson anno 1701 og hafði þær fengið eftir föður sinn Einar Eyjólfsson. Hann ætlar þær frá mér komnar vera til Einars. En ég efast þar um og skyldi snarara trúa hann sjálfur hefði þær frá Bæjarfólki fengið. En ef þetta kynni þó svo að vera. Kannski ég hafi fengið þessar Schedas á Íslandi 1686, skrifad þær svo upp hér í Kaupenhafn og sent Einari þær 1687 eða heldur 1688 eigi hirðandi um þær eftir það ég þær uppskrifað hafði. Það sé ég að þau stærstu errata, sem fyrst voru í mínu Apographo áður en ég þau ope aliorum exemplarium corrigeraði, eru í þessu exemplare. Og eins munu þau vera in exemplari sem ég fékk resenio 1687. Þar að kann ég að gæta Hæc ultima scripsi 1724..

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og Árni Magnússon taldi það runnið frá AM 113 a fol. og því B-gerðar. Það er tímasett ca 1650-1686, en í Katalog I , bls. 76, til síðari hluta 17. aldar.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Grími Einarssyni árið 1701 en hafði fengið það áður frá Íslandi árið 1686 og sent til baka 1687 eða 1688 til Einars Eyjólfssonar föður Gríms (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 30. október 1885 Katalog I, bls. 76 (nr. 136). DKÞ grunnskráði 20. nóvember 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 6. febrúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 8. júní 2020. EM uppfærði kveraskipan 20. júní 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 7. febrúar 2024.

Viðgerðarsaga

Viðgert af Birgitte Dall í nóvember 1971.

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Lýsigögn
×

Lýsigögn