Manuscript Detail
SÁM 26
There are currently no images available for this manuscript.
Ættbálkur hjónanna Samsonar Samsonarsonar snikkara og Óskar Gunnarsdóttur; 1873
Contents
Ættbálkur hjónanna Samsonar Samsonarsonar snikkara og Óskar Gunnarsdóttur
“Ættbálkur hjónanna Samsonar Samsonarsonar snikkara og Óskar Gunnarsdóttur …”
Ættartala.
Physical Description
Upprunaleg blaðsíðumerking 3-112 (2r-56v).
Sjö kver:
- Kver I: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver II: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver III: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver IV: 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver V: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver VI: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver VII: 6 blöð, 3 tvinn.
Aftarlega eru kver aðeins farin að losna úr bandi.
- Eindálka.
- Leturflötur er 146 mm x 85 mm.
- Línufjöldi er 16-19.
- Handritið er línustrikað, en einnig er strikað fyrir leturfleti.
- Stimpill eiganda: Fremra saurbl. 1r.
- Upplýsingar um feril og skrifara með hendi Einars Ólafs Sveinssonar: Fremra saurbl. 1r.
- Leiðréttingar inni í texta og út á spássíum með annarri hendi.
Band frá 1843-1900, e.t.v. samtímaband (180 mm x 116 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd marmarapappír. Rex á kili og hornum. Pappakápum hefur verið slegið um handritið.
Laus seðill með viðbótum, milli bl. 62 og 63, e.t.v. með sömu hendi og aðrar leiðréttingar í handritinu.
History
Skrifað af Sighvati Grímssyni Borgfirðingi 17. nóvember 1873 (sbr. fremra saurbl. 1r og bl. 1r).
Handritið er sennilega skrifað fyrir Ósk Gunnarsdóttur og Samson Samsonarson. Sonur þeirra hjóna, Haraldur, gaf Stofnun Árna Magnússonar handritið (sbr. fremra saurbl. 1r).
Handritastofnun Íslands fékk handritið að gjöf frá Haraldi Samsonarsyni, 23. júlí 1970.
Additional
Bibliography
Author | Title | Editor | Scope |
---|---|---|---|