Tölvuútprent af leikritinu liggur með því, 57 blöð. Ekki er vitað hver sló leikritið inn á tölvu en það er dagsett 2. apríl 2014.
Með hendi Árna Thorsteinssonar tónskálds, snarhönd.
Svört stílabók (202 mm x 165 mm).
Seðill m.h. Jóns Samsonarsonar: Leikrit samið af Árna Thorsteinsson landfógeta. Hdr. úr eigu Árna Thorsteinsson tónskálds. JMS
Blað með blýantsteikningu og nafninu Bjarni framan á blaðinu.
Sálmaskrá fyrir útför Hannesar Thorsteinson.
Handritið var skrifað á Íslandi fyrir 1962, sem er dánarár skrifara.
Frá erfingjum Jóns M. Samsonarsonar og Helgu Jóhannsdóttur.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu 1. október 2014.
ÞS skráði í september 2020.