„Sagan af Huld tröllkonu hinni ríku“
„Hjörvarður hefur konungur heitið …“
„... en eigi verða ættir taldar frá þeim hér á Norðurlöndum.“
„ Hvítadal 4. desember 1895 Guðbrandur Sturlaugsson (495r). “
Endar þannig sagan af Huld drottningu hinni ríku og þeim fóstbræðrum.
Sama saga er einnig til með hendi Guðbrands í SÁM 46, SÁM 65, SÁM 134 og Lbs 4392 4to. SÁM 65 er elst þessara fjögurra handrita en sami texti er í prentaðri útgáfu sem Skúli Thoroddsen gaf út 1909.
Upprunaleg blaðsíðumerking 2-505 (þ.m.t. bls. 367bis og 368bis). Skrifari hefur óvart hlaupið yfir tölur 168-177 og 443-444.
Með einni hendi, skrifari er sbr. blað 495r Guðbrandur Sturlaugsson í Hvítadal.
Á saurblaði er skreyting umhverfis upplýsingar um eiganda, hefur ekki verið upprunalega í handritinu
Saurblöð eru seinni tíma viðbót, á öðru fremra saurblaðinu eru upplýsingar um eiganda: Andrés Brynjólfsson Bessatungu á þessa bók annó 1900
Band (228 mm x 188 mm x 31 mm): Bókaspjöld úr pappa klædd svörtum pappír með leðurkili og -hornum. Titill handritsins gylltur á kili.
Á innri hlið aftara spjalds er límmiði sem á stendur: F. Beyer A.-S. Bokbinderi Bergen.
Ytri klæðning orðin örlítið slitin.
Laus seðill fremst með upplýsingum um hver gaf handritið, dagsettur 15. desember 2014.
Handritið var skrifað í Hvítadal á Íslandi árið 1895 (sbr. bl. 495r).
Guðrún Kvaran afhenti Stofnun Árna Magnússonar handritið til varðveislu 15. desember 2014.