Skráningarfærsla handrits

SÁM 145

Kennslubækur og prédikanir ; Ísland, 1800-1850

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-237v)
Af Rómverjum
Athugasemd

Þýðing úr latínu eða kennslubók með latneskum glósum.

Vantar framan af.

Efnisorð
2 (238r-244v)
Pálmasunnudagur
Athugasemd

Vantar aftan af.

Efnisorð
3 (245r-276v)
Katilinsku ræðurnar
Höfundur

Cicero, Marcus Tullius

Athugasemd

Íslensk þýðing á ræðunum.

Vantar framan af fyrstu ræðu og aftan af hinni fjórðu.

4 (277r-286v)
Kennslubók
Athugasemd

Þýðing úr latínu eða kennslubók með latneskum glósum.

Vantar framan og aftan af.

Efnisorð
5 (287r-290v)
Prédikun
Athugasemd

Vantar framan og aftan af.

Efnisorð
6 (291r-304v)
Kennslubók
Athugasemd

Þýðing úr latínu eða kennslubók með latneskum glósum.

Vantar framan og aftan af.

Hugsanlega hluti af fyrsta efnisþætti handrits.

Efnisorð
7 (305r-110v)
Uppstigningardagur
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
311 bl. (163 mm x 107 mm). Nokkrar arkir aftast eilítið stærri. Bl. 133v og 311r-v auð.
Tölusetning blaða
Handritið er ótölusett.
Ástand

Vantar framan af og víða innan úr.

Fremstu blöðin snjáð og morkin svo texti skerðist.

Handritið er allt notkunarnúið og í slæmu ástandi, blöð laus.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift. Aðrar hendur á sumum öftustu örkunum.

Skreytingar

Teikning af mannshöfði á bl. 46r.

Band

Handritið er óinnbundið. Stærsti hluti þess er saumaður með hamptaumi en hann er illa farinn.

Bl. 238r-244v sérstök örk saumuð með fínum hamptaumi.

Bl. 245r-276v saumuð með fínum hamptaumi.

Bl. 305r-110v saumuð með fínum hamptaumi.

Fylgigögn

Sendibréf dagsett 12/4 '41, undirritað af Gústa. Viðtakandi er móðir hans.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi líklega á fyrri hluta 19. aldar.

Aðföng
Skráð í aðfangaskrá Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í október 2014.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði í október 2020.

Lýsigögn
×

Lýsigögn