„Christi audi nos...“
„...Per aduentum et grām.“
Vantar aftan á víxlsönginn.
Handritið hefur síðar verið blaðmerkt með blýanti.
Blöð mjög vel með farin en lítil hringlaga göt eru á blöðum 1-4.
Texti sést í gegn.
Óþekktur skrifari, textaskrift.
Upphafsstafir mánaðaheita litaðir og flúraðir (rauðir, bláir og hvítir) og lagðir blaðgulli.
Í næstfremsta dálki tímatalsins eru bókstafirnir a-g endurteknir en þeir tákna fjölda daga í viku. Bókstafurinn a er litaður og flúraður (rauður, blár, hvítur) og lagður blaðgulli. Hinir eru með dökkum lit.
Allir upphafsstafir í víxlsöngnum litaðir og flúraðir (rauðir, bláir og hvítir) og lagðir blaðgulli.
Mánaðaheiti, nöfn höfuðdýrlinga og aðrar stórhátíðir eru með gylltum stöfum. Einnig eru rómverskar tölur sem eru í fremsta dálki ritaðar með gylltu letri. Annars skiptist á rautt og blátt letur í línum tímatalsins.
Skrautræma í rauðum, bláum, hvítum og gylltum lit við enda málsgreina víxlsöngsins.
Band (173 mm x 124 mm x 10 mm):
Band frá 20 öld. Bókaspjöldin eru klædd pergamenti og á fremra bókaspjaldi stendur með gylltum hástöfum: „Illuminated calendar and litany use of Paris from ms. hours of the virgin c. 1450.“Band er í góðu ástandi.
Handritið var skrifað í Frakklandi um 1450.
EÞ skráði í janúar 2016.