Skráningarfærsla handrits

SÁM 116a

Hugvekjur og fleira efni ; Ísland, 1840-1876

Innihald

1 (1r-28v)
Hugvekjur
1.1 (1r-6v)
Hugvekja
Titill í handriti

Hugvekja af síðasta vetrardag

Upphaf

Hvörr hann situr undir …

Niðurlag

… sem aldrei mun enda taka

1.2 (6v-12r)
Hugvekja
Titill í handriti

Hugvekja af fyrsta sumardag

Upphaf

Befala þú drottni þína vegu …

Niðurlag

… sem engin tímanna umbreyting verður framar, amen.

Athugasemd

Blöð 12v-21v eru auð (undanskilið: á blað 13v er skrifað Sveinn Ólafsson á Eystri -Tungum á veskið með réttu og á blaði 13r er hringlaga stimpill þar sem á dökkum fleti eru ljósir stafir: SÓlafsson).

2 (22v-26v)
Fleira efni
2.1 (22v-24r)
Kostnaðaryfirlit
Titill í handriti

Ár 1861 uppskrift [. .....]

Athugasemd

Virðist vera kostnaðaryfirlit; alls 119 atriði sem að öllum samanlögðum gefa summuna 328.68.

Blöð 24v-25r eru auð.

2.2 (25v-26r)
Skrá yfir móðurarf
Titill í handriti

Móðurarfur 1840

Athugasemd

Þrjár ær með lömbum, fjárhús og tunnur eru meðal arfshluta.

2.3 (26v)
Minnisblað
Titill í handriti

Minnisblað, ár 1855, hvörja faðir minn gaf okkur bræðrunum öllum eins í lifandi.

Athugasemd

Meðal þessa eru átta ær með lömbum, veturgamlar ær, kýr, hestar …; minnisblaðinu virðist fram haldið á innanverðri bókarkápu (að aftan).

Aftast er laust tvinn, blað 27r er autt (sjá nánar: Spássíugreinar og aðrar viðbætur).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
28 blöð (155 mm x 83-87 mm).
Tölusetning blaða
Blöð voru ótölusett en merkt með blýanti af skrásetjara (3. janúar 2011): 1-8.
Kveraskipan

Eitt kver + 1 laust tvinn:

  • Kver I: blöð 1-28, 14 tvinn + 1 laust tvinn (hugsanlega hefur það verið fimmtánda tvinnið í kverinu (sjá þó: Spássíugreinar og aðrar viðbætur)).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 143-145 mm x 80 mm.
  • Línufjöldi er ca 21-26.

Ástand

  • Eitt kver og eitt laust tvinn, laus í kápunni.
  • Blöð og kápa eru nokkuð notkunarnúin.

Skrifarar og skrift

Skrifari gæti verið Sveinn Ólafsson (sbr. blöð 13v og 28v (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur). Sveinn var faðir Einars Ólafs Sveinssonar og er fimmtán ára 1876 (sbr. Manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands http://www.manntal.is/ ). Líklegra má telja að faðir hans skrifi handritið þar sem þar segir frá móðurarfi 1840 og í bókinni er minnisblað frá 1855 (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur). Skriftin á flestum viðbótunum er þó að mörgu leyti lík þeirri sem er á efni bókarinnar svo hér verður ekki fullyrt um þetta.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á blöðum 13v og 28v kemur fyrir nafn Sveins Ólafssonar: á blað 13v er skrifað Sveinn Ólafsson á Eystrilingum á veskið með réttu og er sú staðhæfing endurtekin á blaði 28v; þar kemur að auki fram ártalið 1876. Á blaði 13r er hringlaga stimpill þar sem á dökkum fleti kemur fram með ljósum stöfum:SÓlafsson.

Á lausa tvinninu, þ.e. á blöðum 27v-28r er nánari tilvísun í fyrrnefnt veski. Blöðin hafa verið innsigluð með rauðu innsigli sem nú er rofið. Þar koma fram eftirfarandi upplýsingar:

  • Blað 27v: Magnús Ásgrímsson á veskið, ég segi satt og gef sem menjagrip Ólafi Sveinssyni á Staðarholti. Til merkis mín hand og segl (?) Magnús Ásgrímsson.
  • 1839. Læt ég … (eftirfarandi texti hefur verið máður út að hluta): … eiga það sem ég hér nefni sem er: [veskið], kistan og hatturinn og það má aunginn af henni taka. Ólafur Sveinsson. Með annarri hendi er ritað: Bundinn Ólafur Sveinsson á Eystrilingum hefur borgað mér sex ríkisdali og búmark sem ég lánaði honum. Ólafur Þ. S

Band

Einungis eitt kver og tvinn - laus í pappakápu.

Handritið liggur í öskju með SÁM 116b-f.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið var skrifað á Íslandi, hugsanlega um eða eftir miðja nítjándu öld en fjögur ártöl koma fram í bókinni 1840, 1855, 1861, 1876 (sbr. blöð 25v, 26v og 28v).
Aðföng

SÁM 116a-f eru komin á Stofnun Árna Magnússonar úr búi Einars Ólafs Sveinssonar.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
VH skráði handritið 3.-4. janúar 2011.
Lýsigögn
×

Lýsigögn