Rímur af Helga hvassa, Hræreki slöngvanbauga, Ívari víðfaðma, Haraldi Hilditönn og Brávallabardaga, eftir Árna Böðvarsson .
„1ta ríma“
„Tvíblinds hallar turna frí …“
„… unni runnar bata.“
Tíu rímur; (sjá nánar: Rímnatal 1966: 91). Blað 1v er autt.
„Geiplur Gísla Konráðssonar. 1ta ríma“
„Fyrir kveða Geiplur gest …“
„… við þeim nú.“
Fimm rímur; hndr.: Lbs. 705 4to, Lbs. 2344 4to, Lbs. 1720 8vo, Lbs. 2087 8vo, Lbs. 2227 8vo, Lbs. 2766 8vo, Lbs. 3240 8vo; JS 430 8vo; ÍB 604 8vo; ÍBR 16 8vo (sjá nánar: Rímnatal 1966: 158).
„Rímur af bardaga þeim er Haraldur konungur Sigurðarson harðráði féll í á Englandi eftir B. L. Blöndal. 1ta ríma“
„Mansöngsvísur mun eg ei mönnum lengi bjóða …“
„… krýndir síðan báðir.“
Fimm rímur; hndr. Lbs. 2668 8vo, Lbs. 2749 8vo, Lbs. 3330 8vo (ehndr.), Lbs. 3332 8vo; ÍBR 143 8vo (sjá nánar: Rímnatal 1966: 204).
„Rímur af Gríshildi góðu. 1ta ríma“
„Valentínus hilmir hét …“
Átta rímur; ortar fyrir Árna Helgason, Brekku í Norðurárdal ; hndr.: ehndr. Lbs. 370 4to, Lbs. 1670 4to, Lbs. 1978 4to (sjá nánar: Rímnatal 1966: 177); einnig: SÁM 76.
„Rímur af Ormari Framarssyni eftir Sigurð Jónsson á Hvalsá. 1ta ríma“
„Hvað skal segja, á ég að …“
„… lengi góður friður.“
Tvær rímur; ortar 1833; hndr.: Lbs. 1632 4to, Lbs. 790 8vo, Lbs. 1106 8vo (sjá nánar: Rímnatal 1966: 370-371).
„Tumi hornabrjótur“
„Þjóð má breiða því við heyrn…“
„… heyri eg suma kenn hann.“
Kvæðið er sennilega eftir Gísla Gíslason yngri (að sögn Gísla Skarphéðinssonar; sjá: Feril).
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-224. bls. 82-83 eru tvíteknar; bls. 225-226 (bls. 227-228 ef mið er tekið af tvíteknu bls.) eru auðar og ónúmeraðar.
Blöð eru tölusett af skrásetjara með blýanti: 1-114.
Fjórtán kver.
Með hendi GÍsla Gíslasonar, sonar Gísla Gíslasonar prests í Vesturhópshólum; snarhönd
Á titilsíðu er titill fyrstu rímunnar skrifaður með fylltum stöfum (sjá blað 1r).
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu (o.fl.) eru með stærra letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 2r og 12r).
Band (180 mm x 115 mm x 22 mm): Pappaspjöld eru klædd marmarapappír; líndúkur er á kili.
Handritið liggur í grárri pappaöskju.
Handritið var skrifað á Íslandi á tuttugustu öld.
VH skráði í september 2010.