Rímur af Þorsteini Eitilssyni, sjá Ármannssögu frá 12.-14. kap. ortar árið1841. Rímur af Hrólfi Gautrekssyni, ortar af Árna Sigurðssyni, fyrrum á Skútum, anno 1822.
„1ta ríma, ferskeytt“
„Hamingjan má hjálpa mér …“
„… ofaní þagnar skeiður.“
Átta rímur; ortar 1849 (sjá nánar Rímnatal 1966: 429). Blöð 38v-40v eru auð (blöð 39-40 eru blaðræmur).
„Fyrsta ríma“
„Fylkir ríkur fyrr á öld …“
„… hverja stundu sælir.“
Tólf rímur; upphaf með öðru móti í Rímnatali: Fylkiskóngur fyrr á öld …. Þar segir að rímurnar séu ortar 1822 fyrir Jón Flóventsson(sjá Rímnatal 1966: 260). Blað 112v er autt.
Upprunalegt blaðsíðutal: Blaðsíðutal er á Rímum Hrólfs Gautrekssonar (1-139) en ekki Rímum Þorsteins Eitilssonar. Öll textablokkin var tölusett með blýanti: 1-112, 27. október 2010.
Fjórtán kver.
Í fyrri hluta handritsins (blöð 1r-40v) eru kver upphaflega númeruð við kveraskil (á efri spássíu), þ.e. við lok fyrsta kvers á blaði 8v er tölustafurinn 1 og 2 á blaði 9r; 3 er á blaði 16v og 4 á blaði 17r o.s.frv. Ekki er um slíka kveratalningu að ræða í seinni hlutanum.
Kver eru einnig númeruð síðar með blýanti á neðri spássíu við upphaf kvers (sbr. (2) sjá blað 9r, (3) sjá blað 17r o.s.frv.); þessi síðari tölusetning kvera á við um báða hluta.
Fyrirsögn og fyrsta lína rímu er með stærra letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 14v og 105r).
Band (1730 mm x 110 mm x 20 mm): Pappaspjöld eru klædd fjólubláum og svörtum marmarapappír; dökkbrúnt skinn er á spjaldhornum og kili.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 107, 109, 110, 111 og 112.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta nítjándu aldar (ef skrifari er Jón Jóhannesson(?) (sjá Skrift:) þá dó hann 1896 (sbr. http://www.herak.is/static/files/Skjalaskrar/H%20skrar/H-11.pdf)).
VH skráði í september 2010.