„Ljóðmælabók; hér skrifast rímur af Remundi Rígarðssyni. 1ta ríma“
„Skáldin fríð um falda strönd …“
„… lofaður sé, ljúfur um aldir alda. Endir.“
Tuttugu og fjórar rímur; (sjá nánar Rímnatal 1966: 399-400).
„Rímur af Úlfi konungi Uggasyni. 1ta ríma, ferskeytt“
„Valur flýgur visku lands …“
„… tröllið þetta hræðumst vær.“
Sex rímur; (sjá nánar Rímnatal 1966: 481-482).
„Rímur af Sigurði fót og Ásmundi Húnakóngi kveðnar af sál. Árna Sigurðssyni. 1ta ríma.“
„Mér nú fyrst í sinni set …“
„… virði korða ágætur.“
Fimm rímur; (sjá nánar Rímnatal 1966: 424).
„Einbúa vísur eignaðar síra Benidikt Jónssyni á Bjarnarnesi.“
„Karl ógiftur einn réð á …“
„… … kljáð til þagnar lykta.“
Vísurnar eru hér eignaðar séra Benidikt Jónssyni á Bjarnarnesi.
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-289; blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-143.
Átján kver.
Með einni hendi; sprettskrift. Skrifari er hugsanlega Guðmundur Sveinsson á Stóru-Þverá? (sjá fremra saurblað, n.t.t. til dæmis upphafs-S í Sveinsson og Stóruþverá og k-ið í bók borið saman við sömu stafi í textanum).
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra og settara letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 8v-9r og 81r).
Skrautbekkur umlykur fyrirsagnir á blöðum 1r, 107r og 127r
Band (170 mm x 108 mm x 35 mm): Beykitréspjöld ásamt kili klædd svarbrúnu skinni í heilt. (sjá nánar: Ástand).
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 100, 101, 102, 103, 104 og 105.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta nítjándu aldar .
VH skráði í september 2010.