Rímur af Hektori og köppum hans, orktar af Árna Sigurðssyni á Skútum 1833.
„1. ríma, ferskeytt“
„Troju þegar breiða borg …“
„… gæða kransinn skíni.“
Fjórtán rímur; ortar 1833 fyrir Þórdísi Arngrímsdóttur ( Rímnatal 1966: 215-216).
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-156; blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-78.
Tíu kver.
Fyrirsögn og fyrsta lína rímu er með stærra letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 9v og 44r).
Band (170 mm x 108 mm x 11 mm): Kverin eru saumuð í þunn blá pappaspjöld sem klædd eru að innan með samskonar pappír og er í skrifpappírnum. Rifinn merkimiði (upphaflega hvítur) er á fremra spjaldinu en þar má sjá (ógreinilega) móta fyrir merkingu: J[.. ............] (Jón Jóhannesson?)
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 100, 101, 102, 103, 104 og 106.
Handritið var skrifað á Íslandi sennilega á síðari hluta nítjándu aldar (?) (Jón Jóhannesson, Hleiðrargarði dó 1896 (sbr. http://www.herak.is/static/files/Skjalaskrar/H%20skrar/H-11.pdf)) .
VH skráði í september 2010.