Hvanndalabræður, 1836.
„Ríma um ferð Hvanndalabræðra til Kolbeinseyjar, kveðin árið 1836 af hreppstjóra Sigfúsi Jónssyni á Syðra-Laugalandi, Eyjafirði“
„Höldar góðir, hlýðið á, …“
„… græðist fagur sómi.“
Ort 1836; áttatíu og fjögur erindi en þau eru talin áttatíu og þrjú í Rímnatali (sjá nánar Rímnatal 1966: 266-267).
Blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-8.
Blað 8 er autt.Eitt kver.
Skrifari óþekktur; snarhönd.
Band (174 mm x 108 mm x 7 mm) er líklega frá því um eða eftir miðja tuttugustu öld (?).
Handritið er bundið í hörð spjöld sem klædd eru máluðum spjaldpappír; rauðbrúnt rexín er á kili og hornum; titill og nafn skáldsins eru gullþrykkt á kjölinn.
Spjaldblöð eru stýfari en annar pappír; þau ytri eru hvít en innri blöðin eru brún. Þau hafa líklega áður myndað kápu um prentað kver; límt hefur verið yfir fremra saurblað rektó og þar skrifaður titill bókarinnar en versó-hlið aftara saurblaðs er með upphaflegum texta (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Spjaldpappír er unglegur með hvítu, ljós- og dökkgráu mynstri.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 100, 101, 102, 103, 104, 105 og 106.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á seinni hluta nítjándu aldar eða upphafi þeirrar tuttugustu (?).
VH skráði í september 2010.