„Fyrsta ríma“
„Snælands forðum snillingar …“
„… mærðar hjalið þrjóti.“
Fimmtán rímur. Rímurnar eru ortar 1823 fyrir síra Gunnlaug Gunnlaugsson í Kvennabrekku; ehndr.: Lbs. 369 4to(sbr. Rímnatal 1966: 70-71); einnig: SÁM 35, JS 431 8vo Blað 85 er autt.
Átta kver.
Með einni hendi, skrifari ókunnur; sprettskrift / snarhönd. Önnur hönd er á blaði 59.
Fylltir stafir og smáflúr við upphaf rímnaflokks (sjá t.d. 1r og 37v).
Band (171 mm x 115 mm x 15 mm) er sennilega frá síðari hluta 19. aldar. Bókarspjöld úr tré eru klædd marmarapappír. Svarbrúnt slétt skinn er á kili og upprunalega virðast horn einnig hafa verið leðurklædd.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 91, 92, 94, 95, 96 og 97.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta nítjándu aldar.
VH skráði í september 2010.