Skráningarfærsla handrits

SÁM 89

Rímur af Hálfdani Brönufóstra ; Ísland, 1800-1899

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-46v)
Rímur af Hálfdani Brönufóstra
Titill í handriti

Rímur af Halfdani Brönufóstra

Upphaf

Mín þó fljúgi …

Niðurlag

… sjálfur himnasmiður.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
46 blöð (170-174 mm x 103-110 mm).
Tölusetning blaða
Blaðsett af skrásetjara með blýanti 1-46.
Kveraskipan

Sex kver.

  • Kver I: blöð1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-46, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155-160 mm x 95-97 mm.
  • Línufjöldi er ca 29-30.
  • Griporð.

Ástand
Bandið hefur látið verulega á sjá. Öll kverin eru laus úr bandinu og blöð eru blettótt og notkunarnúin. Þarfnast viðgerðar.
Skrifarar og skrift

Síðfljótaskrift er á mansöngvum en rímur eru ritaðar með snarhönd (sjá t.d. blöð 41v-42r).

Skreytingar

Fyrirsagnir og fyrsta lína í kafla eru með stærra letri en er á meginmáli, og skriftin á þeim er snarhönd (sjá t.d. blöð 16r og 25v).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Á blaði 1r stendur tvívegis nafnið Anna Margrét.

Neðst á blaðinu má hugsanlega lesa með hendi skrifarans nafnið: Björn Bjarnason .

Stimpill Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar: H. Steinmanner einnig ofarlega á blaði 1r.

Band

Band (162 mm x 100 mm x 18 mm) er alklætt skinni; textablokkin er laus úr bandinu.

Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 85, 86, 87, 88 og 90.

Fylgigögn
Afhendingarlisti Kvæðamannafélagsins Iðunnar, dagsettur 15. september 2008. Miði með númeri handrits á afhendingarlista er einnig meðfylgjandi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á 19. öld.

Ferill
Handritið er gjöf frá Kvæðamannafélaginu Iðunni; tölusett sem nr. 26 á afhendingarlista (sjá fylgigögn). Það var áður í safni Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu þann 15. september 2008. Formleg afhending handritanna fór fram ári síðar, 15. september 2009, þegar Kvæðamannafélagið Iðunn fagnaði 80 ára afmæli sínu.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði í ágúst 2010.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Safnmark
  • SÁM 89
  • Efnisorð
  • Rímur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn