Sagan af Ambales kóngi Skrifuð árið átján hundruð sjötíu og átta. Skrifuð upp árið 1878 af 153 ára gamallri bók eftir handriti síra Péturs Einarssonar, skrifuð árið janúar 1722
„Sagan af Ambales kóngi“
„Donrek hét konungur. Hann réði fyrir Hispaníu Spaníu …“
„… Stýrði hann ríki sínu til dauðadags með stórum lofstýr og hans sonur Guðfreyr tók ríkið eftir hann.“
„Endað Marsmánuði 1878.“
Endir sögunnar af Ambalesi kóngi.
40 kaflar.
„Registur yfir mannanöfn“
Ellefu kver.
Ein hönd, hugsanlega með hendi Jóns Jónssonar Sauðeyings (sbr. nafn efst á blaði 1r), sprettskrift eða snarhönd.
Skreytt titilsíða í fjólubláu og svargráu (sjá 1r).
Á blaði 1r og á blaði 2r eru skreyttir stafir afmarkaðir af hornréttum fleti í öðrum lit, ýmist svargráum eða fjólubláum.Stafirnir sjálfir eru hvítir með lituðum doppum.
Kaflaskipti og fyrsta lína í kafla eru með stærra og á stundum settara letri en er á meginmáli, (sjá t.d. blöð 28v og 70r).
Band (185 mm x 120 mm x 20 mm) nýlegt; líklega frá síðari hluta tuttugustu aldar. Pappaspjöld eru klædd pappír með marmaramynstri. Leður á hornum og kili; kjölur þrykktur með gyllingu; saurblöð tilheyra bandi.
Handritið liggur í grárri pappaöskju.
Handritið var skrifað á Íslandi, 1878 (sbr. blöð 1r og 78r). Efst á blaði 1r er nafnið Jón Jónsson, Sauðeyingur og er þar sennilega um nafn skrifarans að ræða. Á vefsíðunni: http://www.rootsweb.ancestry.com/~nddip/thingvalla.html, er getið um Jón Jónsson Sauðeying, Breiðfjörð meðal Pioneer Icelandic Settlers in Thingvalla Township í Dakota. Jón þessi var fæddur 1856 og var kvæntur Svanborgu Pétursdóttur (1864) samkvæmt þeim upplýsingum sem þar koma fram. Hugsanlega gætu þessar upplýsingar tengst skrifaranum sem hefði þá skrifað bókina tuttugu og tveggja ára gamall.
Á blaði 1v er stipmlað: Thordur✳Gudmundsson frá Kvigindisfirdi.
VH skráði í ágúst 2010.