Skrift og framsetning efnis veldur því að ekki er alltaf auðvelt að henda reiður á hvar eitt efni hefst og öðru lýkur (sjá: t.d. Umbrot, Ástand) í þessari aðdráttarkompu skáldsins Jóhanns Sigurjónssonar (sjá gjafabréf); þetta er stílabók með upphaflegum blöðum að hluta en einnig lausum viðbótarblöðum, mismunandi að gerð og ekki er víst að núverandi efnisröð, og sú sem hér er haldið við skráninguna, sé upphafleg. Byrjað er á bókinni að framan og aftan en blaðtali við skráninguna haldið fram frá öðru upphafinu. Miðjuopnan er auð. Kjóllinn 35.- pakki 13.- pakki 3.- myndir 15.- buxur 14.- þvottur 3.- 83.- Þar á eftir fylgja nokkrar andlitsrissur.
Miðjuopnan er auð (þ.e. blöð 15v-16r). Blöð 16v-30v hafa öfugt efnislegt blaðtal þar sem skrifað er í bókina aftan frá, þ.e.a.s. það efni sem hér fer á eftir hefst á blaði 30v. Við skráninguna er blaðtali fram haldið.
Tvö kver og 17 laus blöð
Jóhann Sigurjónsson; snarhönd.
Framan og aftan á kápu eru rissaðar andlitsmyndir. Inni í bókinni eru einnig nokkrar slíkar myndir.
Stílabók (215 mm x 175 mm x 5 mm). Þunn gráleit pappakápa með svörtum dúk á kili. Aftan á bókinni er stimpill: Peter N. Langsted, Bøg og Papirhandel, 42. Frederiksborggade 42. …
Handritið er í öskju með SÁM 61 b-e.
Handritið er skrifað í Danmörku ca 1899-1905.
Jóhann Sigurjónsson var fæddur 1880 á Laxamýri. Eftir hann liggja ljóð, leikrit, smásögur og ævintýri. Meðal frægustu verka hans eru Fjalla-Eyvindur, Galdra-Loftur, Mörður Valgarðsson, Bóndinn á Hrauni og Rung læknir.
Handritið sem er í fimm hlutum (SÁM 61 a-e) varðveitir aðdráttarkompur skáldsins, sem geyma margvíslegan fróðleik um vinnubrögð hans og þróunarferil einstakra skáldverka, t. d. Bóndans á Hrauni, Fjalla-Eyvindar og Marðar Valgarðssonar(sbr. gjafabréf Sveins Einarssonar).
Jóhann Sigurjónsson dó 1919 (sjá Gunnar Gunnarsson 1940: 7-75 ).
Sigurður Nordal fékk handritið að gjöf 1920 frá Ingeborg Sigurjónsson ekkju skáldsins.
Sigurður Nordal gaf síðan Sveini Einarssyni handritið og frá honum er það komið til Stofnunar Árna Magnússonar (sbr. gjafabréf).
Stofnunin fékk handritið í sína vörslu 12. desember 1996.
VH skráði samkvæmt reglum TEIP5, 18. og 24. nóvember 2010.
Við skráningu var stuðst við eftirfarandi heimildir: Jóhann Sigurjónsson Ritsafn I-III 1980 , Gunnar Gunnarsson, formáli 1980: 7-75 ; Helge Toldberg 1966 ; Jón Viðar Jónsson 2000: 6-7 .