Skráningarfærsla handrits

SÁM 39

Kvæðabók ; Ísland, 1890-1910

Innihald

1 (1r-8v (bls. 3-18))
Unga manns ríma
Titill í handriti

Ungamanns-Ríma.

Upphaf

Styttir dægur, stundir, tíð og árin …

Niðurlag

… sérhvern mann ég forláts bið.

Athugasemd

103 erindi; óljóst um höfund; ort 1783 (sbr. Rímnatal (bls. 483).

Efnisorð
2 (8v-13r (bls. 18-27))
Veronikukvæði
Titill í handriti

Veronikukvæði yfir annálssögu frá tímum Krists

Upphaf

Kveð ég um kvinnu eina …

Niðurlag

… með bæn og trú, héðan af heimi færi.

Athugasemd

23 erindi.

Efnisorð
3 (13r-17v (bls. 27-36))
Annálskvæði
Titill í handriti

Annálskvæði yfir annál Þýskalands sem skeði um 1550

Upphaf

Gjörðist mörgum skemmtan skýr …

Niðurlag

… bæti fólk um bragarsmíð, best er að fagni Jón.

Athugasemd

20 erindi (sbr. Guðmundur Bergþórsson; Vinaspegill, Tólfsona-kvæði og Annálskvæði. Söguljóð. Rv. 1909. 39-46).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Bók.

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 17 + i blöð.
Tölusetning blaða

Upphafleg blaðsíðumerking 3-36.

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: blöð 1-6; 3 tvinn.
  • Kver II: blöð 7-17; 5 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Línufjöldi er ca 21.
  • Leturflötur er afmarkaður nema við neðri spássíu.

Ástand

  • Blað 8 er laust úr bandi.
  • Blöð hafa víðast hvar verið styrkt með mjóum renningum sem límdir hafa verið á jaðra þeirra; efri og neðri, ytri og innri spássíur (sbr. blöð 1, 2, 3; 5, 6, 7, 8, 9, 10; 13, 14, 15, 16, 17).

Skrifarar og skrift

Með hendi Sighvats Grímssonar Borgfirðings (sbr. seðil).

Skreytingar

Fyrirsagnir eru skrautlausar og skrifaðar með örlítið stærra letri en textinn almennt.

Á titilsíðu er ritað nafnið Guðrún Benjamínsdóttir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Á fremra saurblaði er nafn Guðrúnar Benjamínsdóttur.
Band

Band (162 mm x 100 mm x 7 mm) hugsanlega frá upphafi 20. aldar. Kápuspjöld eru klædd mynstruðum pappír; líndúkur á kili og hornum.

Handritið liggur í öskju með SÁM 38.

Fylgigögn

Tveir lausir seðlar fylgja handritinu; á annan er ritað komuár handritsins; á hinn upplýsingar um komuár og eignarhald.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi um 1900.

Aðföng

Handritastofnun Íslands fékk handritið að gjöf 1973 frá Signe Ehrengren, Fálkagötu 51; til hennar var það komið frá Guðrúnu Benjamínsdóttur úr Dýrafirði.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 12.-15. september 2008 og bætti við og lagfærði í september 2010, Jón Samsonarson skráði ca 1970 (sjá ópr. skrá SÁM).

ÞS lagfærði 2. apríl 2019.

Notaskrá

Höfundur: Finnur Sigmundsson
Titill: Rímnatal
Lýsigögn
×

Lýsigögn