„… [Þor]steinn Síðu-Hallsson. Hann var hirðmaður Sigurðar jarls …“
„… Gjörði hann það að er hann átti. Konungur gekk burt og …“
Texti blaðsins er skertur. Á því er brot af niðurlagi 143. kafla, tvö brot úr 144. kafla og úr upphafi 145. kafla.Textinn er ekki samfelldur þar sem það vantar ofan og neðan af blaðinu. Texti samsvarar Njálu, útg. EÓS, s. 439(8)-444(5). Textinn virðist geta verið af X-flokki (sbr. ópr. listi SÁM).
Blað úr Njáls sögu.
Pappír.
r.
Eitt blað úr sögunni, mikið skert
Með einni hendi, skrifari óþekktur. Kansellískrift.
Á ytri spássíu sem er skert að nokkru má sjá ritað: Þorsteir[n]; Hallss.0000; fl. þiggur; af jalli; giorist; mað; Kári 00 0i; í friðar; Jóla 0000; Sigurður; Sigtryg[ur]; 000 …o.fl.
Kaflamerkingar eru skrautskrifaðar og upphaf kafla er með settu letri.
Blaðið er varðveitt í pappaöskju með reimum sem merkt er: Handritasafn Landsbókasafns Íslands.
Strikað hefur verið yfir fyrri merkingar á öskjunni: AM, Lbs. 604c og e 4to.
Handritið var skrifað á Íslandi á 18. öld (sbr. ópr. listi SÁM).
Það er komið úr Þjóðskjalasafni, sennilega snemma á árum Stofnunarinnar (sbr. SÁM-skrá).
Á umbúðir blaðsins hefur verið skrifað: HÍ 1 4to, HÍ 18, HÍ 2.Síðastnefnda númerið hafði handritið í ársbyrjun 1992 og í orðabók Árnanefndar hafði SÁM 2 verið notað fyrir skinnbókarbrotið út úr Guðmundar sögu (sbr. ópr. lista SÁM).Komið úr Þjóðskjalasafni, sennilega snemma á árum Stofnunarinnar (sbr. ópr. lista SÁM).
VH tölvuskráði handritið 23. september 2008, Jón Samsonarson skráði c. 1970. (Sjá vélritaða handritaskrá yfir SÁM-handrit sem varðveitt er á handritasviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum).