„Sagan af þermur Jónum“
„Undir Jökli bjuggu einu sinni þrír bræður sem hétu allir Jónar …“
„… og átti hana síðar og var [.] gildasti bóndi.“
„Helgi Kristjánsson.“
Og ljúkum vér hér sögunni af þremur Jónum.
Undirskriftin er á blaði 14r.
„Sagan af tólf stúdentum. Sögur Páls Illugaso(nar). Hadr. H. Kristjánssonar, Leirhöfn.“
„Einu sinni í fyrndinni voru 12 skólabræður á sama vetri á sama skóla …“
„… Nú ertu búinn að halda mér svo lengi hér að ég get ekki gert bónda neitt ónæði í nótt.“
„Helga Kristjánssonar, Helgi Ausavalt (?) Kristján[…]“
Nöfnin eru á blaði 24r. Sagan er einnig í SÁM 25b; ekki er um orðrétt sömu uppskrift að ræða og niðurlag er með öðru móti.
Blaðsett af skrásetjara með blýanti 1-31.
Blöð 24v-31r eru að mestu auð (Helgi Kristjánsson setur nafn sitt neðst á blað 31r).
Eitt kver.
Með hendi Helga Kristjánssonar í Leirhöfn (sbr. blað 1r og víðar); snarhönd.
Band (161 mm x 105-106 mm x 3 mm): Kverið er heft innan í rauða pappakápu sem sniðin hefur verið um það. Kápan er sniðin úr samskonar örk og er um SÁM 25 f. Myndræn framsetning og áprentaður texti kápunnar tengist alifuglarækt, en þarna er einnig texti sem inniheldur nýárskveðju frá J. Alexander Dobbie og co. Waverley Poultry Food Specialists og Mills, Leith. N.B. (sjá kápuna að innanverðu).
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 25 a-d og f.
Handritið var skrifað á Íslandi, 1908-1910 (sbr. blað 1r).
Bókin er ein sex lítilla bóka sem Stofnun Árna Magnússonar á í uppskrift Helga Kristjánssonar (sbr. ópr. skrá SÁM).
VH skráði 3. nóvember 2010.