„1. stíll;Sagan af stúlkunni sem var kænni en keisarinn“
„Endur fyrir löngu var dálítið sveitaþorp einhvers staðar langt úti í veröldinni …“
„… þar til dauðinn gerði enda á sælu þeirra“
Stílar 1-16 fjalla um ofangreint efni.
„17. stíll; Gullkerran“
„Einu sinni voru tvö fátæk systkin, piltur og stúlka …“
„… því að þau höfðu sjálf best reynt, hver fátæktin er, meðan þau voru börn og lifðu á vergangi.“
Stílar 17-21 fjalla um ofangreint efni.
„22. stíll“
„Maður nokkur sat við miðdegisverð …“
„… Asninn hafði ljónshúð en hann var ekki ljón.“
„23. stíll“
„Litli Jakob var aðeins átta ára gamall, þegar faðir hans tók hann með sér í langa sjóferð …“
„… að þeim væri engin hætta búin er Guð verndaði.“
„Þessir stílar eru skrifaðir veturinn 1909 í Skinnalóni á Melrakkasléttu í Norður-Þingeyjarsýslu af Helga Kristjánssyni frá Leirhöfn á Sléttu.“
Skrifaraklausan er á blaði 32v. Þar er einnig vísan Nú er úti veðrið vott, verður allt að klessu …. Á blöðum 32v-34r er listi yfir þá sem hafa borgað mér U.I. þettað ár 1909 og það Sem ég skulda öðrum o.fl. Blað 34v er autt. Á innanverðu kápuspjaldi er tvisvar skrifuð upp vísa af sama meiði: 1) Vanda þráð í vísustig …, 2) Vanda þráð í vísuþátt …
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-64 (bls. 65-68 eru ónúmeraðar).
Blaðsett af skrásetjara með blýanti 1-34.
Blað 34v er autt.
Eitt kver.
Með hendi Helga Kristjánssonar í Leirhöfn (sbr. spjaldblað); snarhönd.
Band (157 mm x 105 mm x 5 mm): Pappaspjöld eru klædd grænum og svörtum marmarapappír. Spjöldin innanverð eru klædd með skrifpappírnum.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með handritum SÁM 25 a-c og e-f.
Handritið var skrifað á Íslandi, 1909 (sbr. spjaldblað).
Stílabók Helga Kristjánssonar (frá Leirhöfn)Bókin er ein sex lítilla bóka sem stofnunin á í uppskrift Helga Kristjánssonar (sbr. ópr. skrá SÁM)
VH skráði 3. nóvember 2010.