Skráningarfærsla handrits

SÁM 15

Sögubók ; Ísland, 1825

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-22r)
Heiðarvíga saga
Titill í handriti

Sögubrot af Víga-Styr. Fragmentið byrjar svo

Upphaf

… Atli stóð í dyrum úti …

Niðurlag

… lyktar nú þessum málum að sinni, og af hinum …

Athugasemd

Þetta er aðeins þátturinn um Víga-Styr sem Jón Ólafsson úr Grunnavík skrifaði upp eftir minni.

2 (23r-46r)
Blómsturvalla saga
Titill í handriti

Blómsturvalla saga

Upphaf

Þegar Hákon kóngur hafði ráðið fyrir Norvegi 20 vetur …

Niðurlag

… og laun þeir sem vel og snjallt lásu. Endir.

Skrifaraklausa

1825.

Efnisorð
3 (46v-71v)
Jarlmanns saga og Hermanns
Titill í handriti

Jallmanns saga

Upphaf

Vilhjálmur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… og héldu vel trú sína.

Skrifaraklausa

1825.

Baktitill

Og endar svo sagan af Jarlmanni og Hermanni kóngi.

Efnisorð
4 (72r-86v)
Hálfdanar saga Eysteinssonar
Titill í handriti

Sagan af Hálfdani Eysteinssyni

Upphaf

Á fyrri manna dögum réð sá kóngur fyrir Norvegi er Eysteinn hét …

Niðurlag

… og dóttur sem Ingibjörg hét.

Baktitill

Og endar hér sögu Hálfdanar Eysteinssonar.

5 (87r-88v)
Fjósaríma
Upphaf

Efnið máls ég fundið fæ …

Niðurlag

… öruggur stáli beitti …

Athugasemd

Vantar aftan af.

Mansöngurinn er ekki skrifaður upp hér.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
88 bl. (158 +/- 1 mm x 100 +/- 1 mm). Bl. 22v er autt og neðri hluti blaðs 22r.
Tölusetning blaða

Síðari tíma blýantsblaðmerking 1-88.

Umbrot

  • Eindálka.
  • 26-30 línur.
  • Griporð

Ástand

  • Víða vantar orð í textann við spássíur vegna þess að blöðin eru rotnuð á jöðrum. Fyrirsögn (sem verið hefur efst á bl. 87r) hefur trosnað af.
  • Einnig vantar aftan af handritinu.
  • Blöðin hafa verið límd á sýrulausan pappír. Þau eru laus úr bandi.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Band

Gamalt band liggur með handritinu, líklega upprunalegt (165 mm x 108 mm x 13 mm). Tréspjöld klædd skinni.

Fylgigögn

Slitur úr sendibréfi hefur verið notað sem saurblöð en eru nú laus innan í bandi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi 1825 (sbr. bl. 46r og 71v).

Aðföng

Handritastofnun Íslands fékk að gjöf frá Bjarna Sigurðssyni bónda í Hofsnesi í Öræfum 13. janúar 1970.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði handritið 21.-22. júlí 2008 og 2. júní 2010 (sjá einnig óprentaða skrá á Árnastofnun).

Viðgerðarsaga

Gert var við handritið eftir 13. janúar 1970.

Lýsigögn
×

Lýsigögn