„… gengið á annan hátt en hún dró […] fram með tveim stöfum …“
Versósíða er illlæsileg en sýnist af líkum enda á vísu Arngríms: Heilagt blóm kom hringa Naumu …. Efnið er á bls. 167-168 í Biskupa sögum II (1878) .
Skinn.
Engar blaðmerkingar sjáanlegar.
Eindálka.
Óþekktur skrifari, textaskrift.
Rauður upphafsstafur á bl. 1v.
Krot á efri spássíu bl. 1v með síðari tíma hendi.
Blaðið liggur í tilklipptu umslagi sem merkt er Jakobi Benediktssyni og Ragnheiði Möller, umbúðapappír er slegið um það og pappaspjöld sem merkt eru Handritasafni Landsbókasafns Íslands bundin utan um.
Þetta blað er úr sama handriti og AM 219 fol. (á heima milli blaða 16 og 17). Það var skrifað á Íslandi, tímasett til ca 1370-1380 (sjá ONPregistre , bls. 435), en til loka 14. aldar í Katalog I , bls. 176.
Handritastofnun Íslands fékk að gjöf frá Ragnheiði Möller árið 1970.
ÞS skráði handritið 2. júní 2008.