Lögbók Íslendinga hverju sama hefur sett Magnús Noregs kongur ... Svo sem hans bréf og formáli vottast. (Bl. 1v).
„Magnús bréf“
„Magnús með Guðs miskunn Noregs kóngs son Hákonar ...“
„... skal gjalda af sínum peningum.“
Bl. 2r : Bréf Magnúsar Bl. 3v : Þingfararbálkur Bl. 10r : Kristinsdómsbálkur Bl. 15v : Kóngs þegnskylda Bl. 17r : Mannhelgi Bl. 33v : Kvennagifting Bl. 38v : Erfðatal Bl. 51v : Framfærslubálkur Bl. 60v : Landabrigðabálkur Bl. 67r : Landsleigubálkur Bl. 105v : Rekabálkur Bl. 114v : Kaupabálkur Bl. 129r : Farmannalög Bl. 143r : Þjófabálkur Bl. 153v-155v : Formálar Bl. 155v-157r : Tíundar tal, álna tal, þumlunga tal Bl. 157r-163r : Efnisyfirlit
Rektósíður blaðmerktar 1-163 með blýanti, síðari tíma viðbót.
Með einni hendi, Bjarna Jónssonar, blendingsskrift.
Titilsíða er skreytt með ramma utan um texta, með rauðum og bláum lit (bl. 1v).
Skrautbekkur um titil (bl. 1v).
Stór litaður og skreyttur upphafsstafur (bl. 2r).
Upphafsstafir kaflaheita eru litaðir og skreyttir með rauðu, bláu og grænu bleki (sjá bl. 3v, 10r, 15v, 17r, 33v, 38v, 51v, 60v, 67r, 105v, 114v, 129r, 143r).
Minni upphafsstafir eru litaðir með rauðu, bláu eða grænu bleki, sumir skreytir (sjá t.d. bl. 4r, 5r, 6r).
Andlit í upphafsstaf (bl. 17r).
Fyrirsagnir eru ritaðar með rauðu bleki (sjá bl. 3v).
Rauðar pennateikningar/flúr inn á milli texta (sjá t.d. bl. 5r, 6r, 16v, 21r).
Bókahnútur (bl. 163v).
Upprunalegt band (152 mm x 110 mm x 53 mm).
Tréspjöld klædd skinni, kjölur upphleyptur og ein spennsla. Límmiði á aftari spjaldi: „Jonsbok | (Cod membr. Sec. VI XIV).“ Ræmur úr eldra handriti er notað við bindingu.
Áhugavert hvernig bl. 42 er fest í kjöl.
Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (173 mm x 127 mm x 62 mm). Límmiði á kili með safnmarki.
Handritið er slitið og snjáð.
Neðst á kili er illa farið, svo að það sést í kverin.
Handritið er skrifað á Íslandi, nánar á Skarði, Snæfjallaströnd.
Handritið er tímasett 1532? í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 949. Kålund efast þó að „1532“ sé rétt og telur meiri líkur að það sé „1552“, en ártalið er máð (bl. 163v).
Peter Springborg (1969), Nyt og gammelt fra Snæfjallaströnd, s. 305-306 telur að NKS 340 8vo hafi verið skrifað 1653 en ekki 1553 þar sem skrifari handritsins, Bjarni Jónsson, var 17. aldar maður.
Gísli Baldur Róbertsson (2010), Nýtt af Bjarna Jónssyni lógbókarskrifara á Snæfjallaströnd, s. 367, tekur í sama streng.
Á bl. 1r kemur fyrir nafnið „Gísli“.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum14. nóvember 2023 ; uppfærði skráningu 25. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 302.