„Reisubók sáluga séra Ólafs Egilssonar, sem hertekinn var með öðrum í Vestmannaeyjum, og fluttur af landi brott. Anno Christi MDCXXVII. Hans frásögu hljóðar svo:“
Bein uppskrift eftir JS 158 fol.
„Fyrst er vér spurðum í Vestmanna eyjum ræningar í Grindavík ...“
„... Leggur Drottinn líkn með þraut, hans liðsemd er svo vart.“
Jón Þorkelsson. (1906). Tyrkjaránið á Íslandi 1627.
Á bl. 19r er skrifaraklausa þar sem kemur fram að textinn er endurskrifaður eftir handriti og „með hendi Jóns gamla Helgasonar“.
„Ætt séra Ólafs Eigilssonar“
„Séra Ólafur Egilsson hertekur (bróðir séra Jóns ...“
„... Hún lifir enn í Holti í Fljótum hjá dóttur sinni. “
„Skrifað anno 1729 Jón Helgason. (Bl. 19v).“
Blaðsíðumerking 1-38 með blýanti á efri spássíum.
Tvö kver:
Halldór Hjálmarsson, fljótaskrift, en kansellíbrotaskrift í fyrirsögnum, bl. 1r og 19v og á öllum efri spássíum, sjá t.d. bl. 1v-2r. Sjá Tyrkjaránið á Íslandi 1627, bls. 91.
Upprunalegt band (160 mm x 100 mm x 5 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd pappír með flæðimynstri.Límmiði á fremra spjaldi: „Reisubók | Síra Olafs | Egilssonar | 1627“
Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (172 mm x 113 mm x 14 mm). Límmiði á kili með safnmarki.
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett ca 1800 í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 941 sem getur vel passað þar sem skrifari þess, Halldór Hjálmarsson, lést árið 1805.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 4. október 2023 ; bætti við skráningu 16. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 299.