Bréf frá Jóni Ólafssyni frá Grunnavík, dags. 27. júlí 1767. Viðtakandi er óþekktur.
Bréfið er dagsett 9. október 1776. Sendandi er óþekktur.
Bréfið er dagsett 4. september 1778.
Ýmsir seðlar í tengslum við útgáfu á Heimskringlu, svo sem hugmyndir að titlum bl. 4r-v, um handrit, prentun og uppsetningu ýmissa annarra útgefina bóka bl. 5r-10v.
„Skauta-Ljóð, eignað Guðmundi Bergþórssyni.“
„Kátir margir kýma að því / komin sé sú breytnin ný ...“
„... Víst hefur köttur vitrast snót, ...“
Endar í 13 erindi. Öll erindin má finna í: Fróðlegt ljóðasafn ýmislegs efnis, (1856), bls. 109-112.
Blaðmerking 1-13, síðari tíma viðbót á neðri spássíu rektósíðna með blýanti.
Ýmsar hendur, fljótaskrift, kansellíbrotaskrift.
Handritin NKS 2077b I 4to, NKS 2077b II 4to, NKS 2077b III 4to eru saman í öskju (384 mm x 302 mm), safnmark á kili.
Seðlar og skjöl bundin í 6 möppur, á árunum 1972-1986, (365 mm x 250 mm).
Rautt innsigli bl.3v.
Handritið er tímasett til síðari hluta 18. aldar og um aldamótin 1800 í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 911.
Ártöl á blöðum eru frá 1767-1778, en mörg blöð hafa engar dagsetningar.
Handritið hefur verið hluti af NKS 2077 b I 4to og NKS 2077 b II 4to.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 21. nóvember 2023 ; bætt við 24. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 290.