Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 1937 c 4to

Um alin og meðalmann ; Danmörk, 24. desember 1751

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-33v)
Um alin og meðalmann
Titill í handriti

Páll Vídalín um alin og meðal-mann Alin að lengd meðalmaður.

Upphaf

Landsleigub. 7. Alnarkefli. ...

Niðurlag

... ef sönn væri yðar trú um rýrnan vaxtar manneskjanna.

Skrifaraklausa

Exsripsit(!) Hafniæ die 24. dec. 1751. Jo.M. (Bl. 33v).

Efnisorð
1.1 (24r)
Kominn er eg til arna
Upphaf

Kominn er eg til arna / Yngvars er beð lingva ...

Niðurlag

... lins óðar smið finna.

Athugasemd

Eitt erindi.

1.2 (24v)
Það mælti mín móðir
Upphaf

Það mælti mín móðir / að mér fá skyldi ...

Niðurlag

... höggva mann og annan.

Athugasemd

Eitt erindi.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 33 blöð (248 mm x 190 mm).
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 1-66.

    Kveraskipan

    9 kver:

    • Kver I: bl. 1-4, 2 tvinn.
    • Kver II: bl. 5-8, 2 tvinn.
    • Kver III: bl. 9-12, 2 tvinn.
    • Kver IV: bl. 13-16, 2 tvinn.
    • Kver V: bl. 17-20, 2 tvinn.
    • Kver VI: bl. 21-24, 2 tvinn.
    • Kver VII: bl. 25-28, 2 tvinn.
    • Kver VIII: bl. 29-32, 2 tvinn.
    • Kver IX: bl. 33, 1 stakt blað.

    Umbrot

    • Eindálka.
    • Leturflötur er 201-207 mm x 145 mm.
    • Línufjöldi 23-24.
    • Leturflötur afmarkaður með þurroddi.
    • Griporð, pennaflúruð (sjá t.d. bl. 1r).

    Ástand

    • Blöð eru bylgjuð og gulnuð.
    • Það eru föst brot á sumum blöðum.

    Skrifarar og skrift

    Ein hönd, Jón Marteinsson, fljótskrift.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    Á fremra spjaldi er gamalt safnmark og stimpill sem á stendur: Bibliotheca Regia Hafniensis.

    Band

    Upprunalegt band (249 mm x 193 mm x 9 mm).

    Pappaspjald.

    Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (270 mm x 208 mm x 25 mm). Límmiði á kili með safnmarki.

    Handritið er snjáð.

    Límmiði á kápu.

    Fylgigögn

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Handritið var skrifað 24. desember 1751 í Kaupmannahöfn (bl. 33v).

    Það er tímasett til 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 851.

    Aðföng

    Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

    Var áður í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn.

    Aðrar upplýsingar

    Skráningarferill

    MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 15. nóvember 2023 ; yfirfarið 25. janúar 2024.

    Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 275.

    Viðgerðarsaga
    Morten Grønbech gerði við, fyrst í mars 1972 og seinast í september 1993 til janúar 1994. Ekkert var hreyft við bandi, en handritið er í nýju hylki. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.
    Myndir af handritinu

    • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

    Notaskrá

    Lýsigögn
    ×

    Lýsigögn