„Kvæðið Gimsteinn“
„Heyri skínandi hjartans yndi / himna blómi og sálma sómi ...“
„... í öllum áttum eiginlega framar en segjum.“
„Endir Gimsteins.“
Á bl. 9v-10r segir: „Nú byrjast síðari partur Gimsteins sem nokkrir segja hann hafi kveðið eftir það hann hafði legið í andvana 3 nætur, og skuli Eysteinn author kvæðisins, hafa uppsest og skrifað þetta sem eftir fylgir.“
160 erindi. Jón Helgason segir röð erinda þá sömu og í AM 104 8vo (Jón Helgason, Íslensk miðaldakvæði, I. bindi 2. hefti, s. 300).
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-55 með bleki á efri spássíu.
Sjö kver:
Óþekktur skrifari, ein hönd, snarhönd.
Upprunalegt band frá seinni hluta 18. aldar (212 mm x 166-167 mm x 5 mm).
Bundið í ljósbrúnan pappír. Kjölur lítillega upphleyptur á uppistöðum.
Handritið er í öskju (231 mm x 183 mm x 21 mm). Límmiði á kili með safnmarki.
Kápan er smáblettótt og dekkri við kjöl og jaðar.
Handritið er tímasett til seinni hluta 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte nr. 810.
Jón Helgason segir um aldur handritsins: „Skrevet af en af de islandske afskrivere, der i det 18. aarhs. sidste fjerdedel virkede i København.“ Jón taldi því að handritið hefði verið skrifað upp í Kaupmannahöfn af íslenskum skrifara á síðasta fjórðungi 18. aldar. (Jón Helgason, Íslenzk miðaldakvæði, I. bindi 2. hefti, s. 300).
Í The Saints in Old Norse and Early Modern Icelandic Poetry, s. 71, kemur fram að handritið sé ca frá 1775-1800.
Jón Helgason telur að handritið hafi verið í eigu Peter Fredriks Suhms, sjá (Jón Helgason, Íslenzk miðaldakvæði, I. bindi 2. hefti, s. 300).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritnu 9. apríl 1997.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
OP skráði handritið apríl 2023.
BS aðlagaði kóðann samkvæmt TEI P5 reglum 2. maí 2023.
MJG uppfærði upplýsingar 12. september 2023 og síðar.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 262.
>Morten Grønbech gerði við handritið í febrúar til apríl 1993. Ekkert var hreyft við bandi en handritið er í nýju hylki. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.