Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 1854 m VI 4to

Collectiones et excerpta ad philologiam Islandicam, 1790-1810

Innihald

(1r-109v)
Excerpta philologica I.
Titill í handriti

S. Antonius S.

Upphaf

Lá hann mállaus og örvita ...

Niðurlag

... dreift um dalinn.

Athugasemd

Á fremra spjaldi er efnisyfirlit.

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
109 blöð (ca. 212 mm x 165 mm). Auð blöð: 91v, 107r-109v.
Tölusetning blaða

  • Eldri blaðsíðumerking 1-212, í efra horni.
  • Blaðmerking 343-451, með blýanti á neðri spássíu rektósíðna, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

Fjórtán kver:

  • Kver I: 1-7, 3 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver II: 8-15, 4 tvinn.
  • Kver III: 16-23, 4 tvinn.
  • Kver IV: 24-31, 4 tvinn.
  • Kver V: 32-39, 4 tvinn.
  • Kver VI: 40-46, 1 stakt blað + 3 tvinn.
  • Kver VII: 47-54, 4 tvinn.
  • Kver VIII: 55-62, 4 tvinn.
  • Kver IX: 63-70, 4 tvinn.
  • Kver X: 71-78, 4 tvinn.
  • Kver XI: 79-86, 4 tvinn.
  • Kver XII: 87-94, 4 tvinn.
  • Kver XIII: 95-102, 4 tvinn.
  • Kver XIV: 103-109, 1 stakt blað + 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 113-199 mm x 140-152 mm.
  • Línufjöldi er 11-37.
  • Leturflötur er afmarkaður með tveimur lóðréttum strikum, fram að bl. 84v.

Ástand

  • Blöð eru snjáð, jaðar dekkri og bylgjaður.
  • Bleksmitun víða (t.d. bl. 2r, 61v).

Skrifarar og skrift

Eiginhandrit Jóns Ólafssonar (eldri) frá Svefneyjum, fljótaskrift, snarhönd og sprettskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á fremra spjaldi er gamalt safnmark og handskrifað með blýanti: 109 blade 15/10 1984 Jr.

Band

Upprunalegt band (210 mm x 165 mm x 15 mm).

Bundið í pappírskápu.

Handritið er í nýlegri öskju (217 mm x 180 mm x 27 mm). Límmiði framan á með safnmarki og merki Árnastofnunnar.

Heiti handritsins er á bókakápu.

Kápa handritsins er snjáð og slitin.

Kver eru sum staðar laus við kjöl.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið NKS 1854m 4to, Collectiones et excerpta ad philologiam Islandicam, er í tíu bindum:

Handritið er tímasett ca. 1800 í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 297.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1986.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum, 31. janúar 2024.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 248.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn