Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 1671 a II 4to

Fortsettelse af Efterretningerne om Tildragelserne ved Bierget Hekla udi April og følgende Maaneder 1766, 1750-1799

Titilsíða

Forsettelse af Efterretninerne om Tildragel sene med Bierget Katla udi April og fölgende Maanuder 1766. (Bl. 1r).

Tungumál textans
danska

Innihald

(1r-12v)
Fortsettelse af Efterretningerne om Tildragelserne ved Bierget Hekla udi April og følgende Maaneder 1766
Upphaf

Desse ved Trykten udgivur Efterretninger haldte og ved den 5. juli 1766. Jeg ...

Niðurlag

... ikke kand komme i den mindste ligning.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
12 blöð, (211 mm x 162 mm). Bl. 1v autt.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerking 7-18 með blýanti á neðri spássíu rektósíðna.
  • Leifar af eldri blaðmerkingu í efra horn rektóblaða.

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-12, 2 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 210 mm x 160 mm.
  • Línufjöldi er 24-26.

Skrifarar og skrift

Hannes Finnsson, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Neðanmálsgrein á bl. 12r.
  • Á fremra spjaldi er stimpill og á honum stendur: Bibliotheca Regia Hafniensis.

Band

Handritin NKS 1671a I 4to, NKS 1671a II 4to, NKS 1671a III 4to, NKS 1671a IV 4to og NKS 1671a V 4to eru bundin saman í eina bók.

Aldur bands óþekkt (219 mm x 181 mm x 9 mm).

Bókaspjöld úr pappa klædd pappír með flæðimynstri. Kjölur og horn klædd brúnu leðri.

Límmiði á fremra spjaldi með safnmerki.

Handritið er í nýlegri öskju (224 mm x 182 mm x 18 mm). Límmiði framan á með merki Árnastofnunar og safnmarki.

Fylgigögn

Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 1671, 4° | Nogle Breve og | Beretninger om | Eruptioner paa | Island: 1775, 1766, | 1767, 1785, 1821-23. |1 bind.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Á bl. 10r koma fyrir nöfnin Þorsteinn Halldórsson og Sigurður Erlendsson, skrifað við Reiðavatn 1. nóvember 1766.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. september 1986.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupamannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum, 9. október 2023 ; bætt við skráningu 16. janúar 2024.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 197-198.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn