„Tíðs fordríf eður Lítil annálskver. Sitt af hverju til sýnis viljann að birta til samans teiknað af mér Jóni Guðmundssyni ætatis. 70. anno domini 1644.“
Uppskrift eftir AM 727 II 4to, að hluta, sem er jafnvel talið að hafa verið skrifað af Jóni Guðmundssyni, lærða, árið 1644.
„Virðulegum heiðurs herra meistara Brynjólfi Sveinssyni, biskupi að Skálholti, ...“
„... Kuggur. Fartíður og liða.“
„Vísa Þorleifs Þórðarsonar, 40 mannanöfn“
„Styr, Jon, Stíg ...“
„... Garð, Snjólf, Bárð, Hrólf, Varða.“
Upprunaleg blaðsíðumerking, á efri spássíu, 1-74.
Fimm kver:
Blöð aðeins gulnuð og snjáð á blaðjöðrum.
Óþekktur skrifari, ein hönd, fljótaskrift með kansellíbrotaskrift í undirfyrirsögnum og í upphafi kafla, nöfn og staðir með snarhönd.
Sennilega upprunalegt band frá seinni hluta 18. aldar (334 mm x 212 mm x 7 mm).
Bókaspjald úr pappa með rauðum pappír límdum yfir. Kjölur lítillega upphleyptur á uppistöðum.
Handritið er í nýlegri öskju (338 mm x 220 mm x 17 mm).
Límmiði framan á öskju með safnmarki.
Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: „Haandskr. Afd. | Ny kgl. | saml. | 90 g | fol.“, liggur laus í öskjunni.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritnu 21. ágúst 1986.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG uppfærði skráningu 8. september 2023 og 8. janúar 2024.
BS aðlagaði kóðann samkvæmt TEI P5 2. maí 2023.
AM skráði handritið 27. apríl 2023.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 87.