Skráningarfærsla handrits

NKS 11 fol.

Guðspjöll ; Ísland, 1550-1599

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-43v)
Lúkasarguðspjall
Titill í handriti

Fyrsti cap.

Upphaf

Af því að margir hafa stundað í lag að færa þær sagnir ...

Niðurlag

... og voru jafna í musterinu vegsamandi og lofandi Guð. Endir S. Lúkas guðspjalla.

Efnisorð
2 (44r-77r)
Jóhannesarguðspjall
Upphaf

Í upphafi var orðið, og það orð var hjá Guði ...

Niðurlag

... að heimurinn mundi eigi yfir grípa þær bækur sem skrifast mættu. Hér endast S. Jóhannis Evangelium.

Athugasemd

Kålund telur að guðspjöllin séu skrifuð eftir Nýja testamennti Odds Gottskálkssonar (1540), (Katalog Kålunds, bls. 86).

Efnisorð
3 (77r-v)
Harmljóð
Titill í handriti

Þessa bók á sú eðla kvinna Guðrún Árnadóttir Péturssonar ...

Upphaf

Með heilags anda hjálp og náð / hefja vil ég upp orðasáð ...

Niðurlag

... leiddi fram í lífsins tukt, sem líðnum kristnum ...

Athugasemd

Vantar aftan af; endar í 9. erindi.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
77 + i blað (250 mm x 164 mm). Blað 76 er autt.
Tölusetning blaða

Blaðmerking með blýanti á efri spássíu rektósíðna, 1-77, seinni tíma viðbót.

    Umbrot

    • Eindálka.
    • Leturflötur er 190-195 mm x 119-115 mm.
    • Línufjöldi er 27-28.
    • Griporð víða.
    • Texti endar í totu (bl. 75v).
    • Eyður á stöku stað fyrir upphafstafi.

    Ástand

    • Blöðin eru dökk, stökk og brothætt, en texti er óskertur.
    • Gat á bl. 23 skerðir texta.
    • Skellótt að hluta.

    Skrifarar og skrift
    Tvær hendur.

    Með hendi Eiríks Árnasonar, textaskrift.

    Óþekktur skrifari, textaskrift (bl. 75).

    Skreytingar

    Stór flúraður upphafstafur (bl. 1r).

    Minni upphafstafir í upphafi hvers kafla.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    • Innan á fremra spjaldi er stimpill sem á stendur: „Bibliotheca Regia Hafnensis“.
    • Blöð 75-76 eru innskotsblöð.
    • Spássíugreinar og tilvísanir víða.

    Band

    Handritið er bundið í tréspjöld með spennslu (261 mm x 158 mm x 45 mm).

    Handritinu er pakkað inn í pappír og bundið með pappaspjöldum að ofan og undir með reimum.

    Kjölur saumaður.

    Upphafsstafirnir HD hafa verið skornir út á bókarkápu.

    Saurblað er úr latnesku helgisiða handriti. Þar eru nokkur mannanöfn frá 17. öld.

    Fylgigögn

    Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 11, 2°.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 16. aldar í Katalog Kålunds, nr. 158.

    Ferill

    Guðrún Árnadóttir átti handritið eins og kemur fram í formála að ljóðinu á bl. 77r-77v, sem Eiríkur Árnason prestahatari, eiginmaður hennar, orti eftir hana.

    Aðföng

    Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. ágúst 1986.

    Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

    Aðrar upplýsingar

    Skráningarferill

    MJG lagfærði eftir yfirlestur ÞS, 11. desember 2023.

    MJG bætti við skráningu, 5. desember 2023.

    MJG skráði handritið samkvæmt TEI P5 reglum, 15. nóvember 2023.

    Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 86.

    Viðgerðarsaga
    Myndir af handritinu

    • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

    Notaskrá

    Lýsigögn
    ×

    Lýsigögn