Tileinkunin (óþekkt hverjum) er dagsett: „Selárdalur, 15. apríl 1705“ og undirskrifað Paulus Biornonis (bl. 2v).
Handritið hefur verið blaðmerkt með blýanti á neðri spássíu rektósíðna 1-183, seinni tíma viðbót.
Eiginhandarrit Páls Björnssonar, fljótaskrift.
20. aldar band (321 mm x 230 mm x 43 mm).
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saurblöð tilheyra nýju bandi.Eldra band fylgdi í bandaspjöldum með handritinu.
Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: „Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 6| fol.“
Handritið var skrifað á Íslandi í Selárdal á árinu 1705 (sbr. bl. 2v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. ágúst 1986.
MJG skráði handritið samkvæmt TEI P5 reglum, 15. nóvember 2023 ; uppfærði skráningu 5. desember 2023 ; lagfærði eftir yfirlestur ÞS 11. desember 2023 og 9. apríl 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 85.