Ljóðmæli eftir ýmsa höfunda skrifað upp 1865 af K. Sigurðardóttur. (1r)
„Til rósarinnar“
„Rósin mín fríð / í fjalla hlíð …“
6 erindi.
„ … bælt og sundur marið …“
Af 8 erindum kvæðisins er hér aðeins niðurlag 7. erindis og 8. erindi.
„Til Maddömu Herdísar Benediktsen“
„Þú, sem um daga dúki hefir tíðum …“
Sonnetta (4 erindi) í samfelldum texta án skiptingar í vísur.
„Kom þú, kvendið góða! …“
4 erindi. Undir kvæðinu er fangamarkið „B.O.“ og undirstrikað „JonThoroddsen“. B.O. er líklega Brynjólfur Oddsson bókbindari.
„Þ. St. Blöndal“
„Við heljar grjót, og hamra fót …“
Erfikvæði um Þorlák Stefán Blöndal umboðsmann. 6 erindi.
„P. Guðmundsson“
„Einatt illa grónar …“
Erfiljóð um Pétur Guðmundsson. 3 erindi.
„Kirkjugarðsvísur“
„Hvert helst sem lífsins bára ber …“
5 erindi.
„Feðra-minni!“
„Viður ísanna brot drógu eikur á flot …“
7 erindi.
„J. Ó. Kristjánsdóttir“
„Með tengdar hendur ljósa lík …“
Erfiljóð um barn. 8 erindi.
„Kvæði“
„Gyðja sólbjört á Síprus ey! …“
17 erindi.
„Kvæði.“
„Dagur reiði, dagur voða …“
17 erindi.
„Vísur“
„Hvarflar til þín hugur minn …“
Í prentuðum Ljóðmælum eptir Gísla Eyjúlfsson, Seyðisfirði 1883, s. 69-70, er ljóðið 4 erindi. Tvö erindanna í handritinu (1. og 3.) eru í útgáfunni en orðamunur er nokkur. 2. erindi handritsins er ekki í útgáfunni.
Pappír.
Einn dálkur.
Leturflötur er 155-160 mm x 90 mm.
Línufjöldi 18-24.
Óinnbundið hefti.
Á blaði 1r er ritað með annarri hendi og öðru bleki nafnið Jónína Steinvör Eggertsdóttir (átti móðurbróður sinn, Skúla Lárus Einarsson á Stóru-Ásgeirsá, síðar Gunnar Ingvarsson frá Laugardalshólum).
Oddný Ingvarsdóttir fékk handritið frá föðurbróður sínum, Gunnari Ingvarssyni í Laugardalshólum í Laugardal (d. 1934), en kona hans var Steinvör Eggertsdóttir frá Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, dóttir Eggerts Jónssonar á Kleifum, og frá henni er handritið komið.