Pappír.
Bjarni Thorarensen
Sigurður Breiðfjörð
Sigurður Helgason
Litskreyttir upphafsstafir.
Sigurður Helgason dannebrogsmaður á Jörfa hefur átt handritið og bundið inn 1856 (titiblað r og víðar). Rímur af Ambrósíusi og Rósamundu hefur hann fengið að gjöf frá höfundi.
Síðar hefur séra Helgi Sigurðsson á Melum eignast handritið (titlblað v), og Einar Eiríksson blóðtökumaður í Kolbeinsstaðahreppi skrifað nafn sitt á það í apríl 1843 (bl. 2r).
Á miða á milli bls. 203 og 204 er getið um handrit að Vilchinsmáldaga.
Ingibjörg Helgadóttir á Jörfa hefur átt bls. 283-296.
Lbs 3372-3402 8vo, gjöf til Íslands frá Sigurði Bárðarsyni smið, er bjó um skeið á Jörfa, en fluttist til Vesturheims sumarið 1886. Sonur Sigurðar, Leo Breiðfjörð , sendi Háskóla Íslands handritin 1952 , en síðan voru þau afhent Landsbókasafni til eignar. Sum handritin eru með nafni séra Helga Sigurðssonar á Melum, en handrit úr fórum hans voru send börnum hans vestur um haf að honum látnum 1889.
Sbr. Lbs 3623-3630 4to.
Til Þjóðminjasafns runnu úr þessari sömu gjöf Syrpa séra Helga Sigurðssonar á Melum (nr. 15175) og ljóðakver með hendi séra Helga og Helga sonar hans 1867-1868 (nr. 15174).
Skráning Gríms M. Helgasonar og Lárusar H. Blöndal á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. aukabindi, bls. 129-130.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 16. maí 2018.