Ýmsar rímur af fornaldarköppum og konungum. Skrifaðar upp af Jóhannesi Kjartanssyni á árunum 1908-1912-15. Grænhól á Barðaströnd (1r).
„Rímur af Aristomenes og Gorgi, ortar af Sigurði Eiríkssyni Breiðfjörð“
„Herjans dísir, vitjið vor / og valkyrjurnar hörðu …“
„Endaðar 4. febrúar árið 1908, á Hlaðseyri af J. Kj. (63v).“
22 rímur.
„Rímur af Valdimar kóngi og Sveini, ortar af Sigurði Eiríkssyni Breiðfjörð“
„Það er sagt á árum ár / öðlingarnir Dana …“
„Endaðar 14. febrúar árið 1908 á Hlaðseyri við Patreksfjörð af Jóhannesi Kjartanssyni (91v).“
12 rímur.
„Rímur af Gísla Súrssyni, ortar af Sigurði Eiríkssyni Breiðfjörð“
„Þig tilbiðja enn eg á, / Iðunn, drottning ljóða …“
„24/2 1908 (107r).“
Fimm rímur.
„Rímur af Jóhanni og Jóhönnu, ortar af Skúla Bergþórssyni á Meyjarlandi í Skagafirði“
„Letra skrá hér færist fram, / fjötluð mærðar lykli …“
„Endaðar síðasta sumardag árið 1915, Jóh. Kjartansson Grænhól (127r).“
Fimm rímur.
„Rímur af Ajax keisarasyni og bræðrum hans, ortar veturinn 1914 af Jóhannesi Kjartanssyni á Grænhól“
„Lýsir dagur loft og sjá, / ljóma strjálar víða …“
Þrjár rímur.
„Rímur af Gústaf Adólf og Valvesi, ortar af Sigurði Eiríkssyni Breiðfjörð“
„Hef eg til þín hug og mál, / hjartans eld sem glæðir …“
„9/12 1915 JK (156r).“
Sjö rímur.
„Rímur af Atla Ótryggssyni, ortar af Jóni Sigurðssyni og Símoni Dalaskáldi“
„Mín er ærið heimskan há, / hlýt eg slíkt að játa …“
„31. desember 1915, Jóhannes Kjartansson Grænhól á Barðaströnd (181r).“
Sex rímur, hinar fyrri þrjár eftir Jón en seinni þrjár eftir Símon.
„Rímur af Héðinn og Hlöðvir, ortar af Jóni Eyjólfssyni (syni Eyjólfs í Sveinatungu)“
„Ættartigin öðling þann / Arkus nefnir saga …“
„Ortar af Jóni Eyjólfssyni á Sámsstöðum í Hvítársíðu syðra. Grænhól 12. janúar 1916, Jóhannes Kjartansson (207r).“
Átta rímur.
„Rímur af Sigurði fót og Ásmundi Húnakóngi, ortar af Árna Sigurðssyni“
„Mér nú fyrst í sinni set, / sendir glossa hranna …“
„22. janúar 1916 (222v).“
Fimm rímur.
„Rímur af Jómsvíkingabardaga, ortar af Sigurði Eiríkssyni Breiðfjörð“
„Tóka nefna má eg mann / mærðar fyrst í tóni …“
„ (27r).“
Enda í 10. rímu.
„Rímur af Tístran og Indíönu, ortar af Sigurði Eiríkssyni Breiðfjörð“
„Tímann sama sem um kveð, / sæmdur Ránar eldi …“
„14/1 1909 (305v).“
14 rímur.
„Rímur af Konráði keisarasyni, ortar af skáldinu Magnúsi Jónssyni prúða, í Bæ á Rauðasandi (dó 1591)“
„Þó eg Rögnis rausnar flóð / rekkum vildi skeinkja …“
„Endað að skrifa 15. desember 1911, Grænhól, Jóh. Kjartansson (329r).“
Átta rímur. Hér eru rímurnar eignaðar Magnúsi Jónssyni prúða en samkvæmt Rímnatali er höfundur þeirra óþekktur.
„Rímur af Úlfi Uggasyni, ortar af Bergþóri Oddssyni í Flatey á Skjálfandafljóa“
„Valur flýgur visku lands / Viðriks firði nærri …“
Sex rímur.
„Rímur af Katli hæng og Grími loðinkinna, ortar af Magnúsi Jónssyni, 3 þær fyrstu, en 7 þær síðari af Fúsa bróðir hans“
„Skáldin forðum skýrri þjóð / skemmtun dýra veittu …“
„Rímur þessar eru skrifaðar eftir handriti sem upp hefur verið skrifað árið 1700. Endaðar 7. janúar 1912, Jóhannes Kjartansson. Rímur þessar eru eftir öllum líkindum ortar af Magnúsi Jónssyni, (föður Árna Magnússonar) og Vifúsi Jónssyni, bróðir hans (Leirulækjar-Fúsa) (378r).“
Tíu rímur, þrjár fyrstu eftir Magnús en hinar sjö síðari eftir Vigfús.
„Rímur af Víglundi væna, ortar af Ásgrími Magnússyni í Höfða“
„Skil eg ei þann skemmtan lér / skorti heyran kvenna …“
„Skrifaðar upp eftir 211 ára gömlu handriti. - 28. januariis - árið 1912 (329v).“
15 rímur.
„Rímur af Hrafni Hrútfirðing, ortar af Símoni Bjarnarsyni Dalaskáld árið 1907“
„Litið þó að miðlist mér / af Mímis vinar hornum …“
„12. mars 1914, Jóhannes Kjartansson, Grænhól (363v).“
Fjórar rímur.
Pappír.
Innbundið.
Keypt í febrúar 1937 af Guðmundi Benediktssyni.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 79-80.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 27. apríl 2017.