„Nokkrir sálmar og einstök vers flest alveg frumkveðið, með líkri niðurröðun að efni til og í sálmaviðbætinum nýja sem veik tilraun að bæta litlu einu ... sent af höfundinum ... og með þeirri djörfu ósk og von að eitthvað mætti ... notast af þessu til síns augnamiðs“
Sálmar ætlaðir til birtingar í sálmabókinni nýju 1871 með hendi síra Vigfúsar Guttormssonar. Aftast eru nokkrir sálmar í eiginhandariti Guðmundar og Jens.
Pappír
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði 19. febrúar 2021.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 151.