Skráningarfærsla handrits

Lbs 610 8vo

Sálmar, 3. bindi ; Ísland, 1600-1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-1v (bls. 1-2))
Náðugi Guð í nafni þínu
Titill í handriti

Eitt kvöldvers

Upphaf

Náðugi Guð í nafni þínu / nú vil ég leggja til hvíldar …

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
2 (1v-2r (bls. 2-3))
Guð minn gefi mér að sofna vært
Titill í handriti

Ein kvöldbæn

Upphaf

Guð minn gefi mér að sofna vært og rótt á þessari nótt …

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
3 (2r-2v (bls. 3-4))
Hjónin sem sitja hér við borð
Titill í handriti

Eitt hjónavers

Upphaf

Hjónin sem sitja hér við borð / hjálpar Guðs æskja sér …

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
4 (2v-5r (bls. 4-9))
Gefðu Jesús ending góða allra nauða
Titill í handriti

Eitt kvæði

Upphaf

Gefðu Jesús ending góða allra nauða

Athugasemd

16 erindi

Efnisorð
5 (5v (bls. 10))
Yður nú öflug Guðs verndarhönd
Titill í handriti

Eitt vers. Tón: Þeir þrír menn

Upphaf

Yður nú öflug Guðs verndarhönd / lelidi trú[!] með lukku svo meinagrönd …

Lagboði

Þeir þrír menn sem sátu í eldins ón

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
6 (6r (bls. 11))
Bið ég föður blíðan náða
Titill í handriti

Ein vísa

Upphaf

Bið ég föður blíðan náða / brúði rjóða gæðum dáða …

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
7 (6r-6v (bls. 11-12))
Lifðu æ í friði fríðum
Titill í handriti

Önnur vísa vísa

Upphaf

Lifðu æ í friði fríðum / fáðu ást hjá Guði og lýðum …

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
8 (6v)
Óska ég þér af hjarta hér
Upphaf

Óska ég þér af hjarta mér / að hljótir þú blessan dýra …

Athugasemd

1 erindi.

Efnisorð
9 (7r-7v (bls. 13-14))
Gefðu mér, Jesús, góða nótt
Titill í handriti

Kvöldvers

Upphaf

Gefðu mér, Jesús, góða nótt / gefðu mér hvíldarstund …

Athugasemd

1 erindi

Efnisorð
10 (7v (bls. 14))
Herrann Jesús heillin allra hlífarskjól
Titill í handriti

Einn góður sálmur

Upphaf

Herrann Jesús heillin allra hlífarskjól / eilífa lífsins sæla sól …

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
11 (8r-8v (bls. 15-16))
Sálmur, óheill
Upphaf

… á þig ó minn Jesú þránefnda / æ nær mun ég sjá auglit hans …

Athugasemd

Vantar framan og aftan af. Byrjar og endar í miðju erindi. Líklega 2 heil erindi varðveitt og hálft fremst og hálft aftast.

Efnisorð
12 (9r-13v (bls. 17-26))
Sálmur, óheill
Upphaf

… jót þín miskunn mæta / mun þar best um bæta …

Athugasemd

Vantar framan af. Byrjar í miðju erindi. Tíu og hálft erindi varðveitt.

Efnisorð
13 (13v-15r (bls. 26-29))
Öll þegar mannleg aðstoð dvín
Titill í handriti

Eitt vers. Tón: Eilíft lífið er æskilegt

Upphaf

Öll þegar mannleg aðstoð dvín / ó hjartans herrann kær …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
14 (15r-16v (bls. 29-32))
Meistarinn hæsti minn Jesús besti
Titill í handriti

Einn sálmur. Tón: Með hjarta og tungu hvör m

Upphaf

Meistarinn hæsti minn Jesús besti

Lagboði

Með hjarta og tungu hver mann syngi

Athugasemd

Vantar aftan af. Hér eru 7 og hálft erindi.

Efnisorð
15 (17r-17v (bls. 33-34))
Eilífa veit oss æðsta náð
Titill í handriti

Eitt vers. Tón: Eilíft lífið er æskilegt

Upphaf

Eilífa veit oss æðsta náð / englafríðum hjá …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

3 erindi

Efnisorð
16 (18r-18v (bls. 35-36))
Ó hvað fánýtan hefur óm
Titill í handriti

Annað vers. Með sama tón

Upphaf

Ó hvað fánýtan hefur óm / holdlegt verunnar glys …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
17 (18v-19r (bls. 36-37))
Ennþá síðasta öngvit hér
Titill í handriti

Þriðja vers. Með sama tón

Upphaf

Ennþá síðasta öngvit hér / yfir mig líða skal …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
18 (19v-20r (bls. 38-39))
Hvör er svo blindað hyggju þel
Titill í handriti

Fjórða vers. Sama tón

Upphaf

Hvörs er svo blindað hyggju þel / að hafi ei fangað lyst …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
19 (20r-20v (bls. 39-40))
Þá dauðans rökkur drottinn kær
Titill í handriti

Fimmta vers. Sama tón

Upphaf

Þá dauðans rökkur drottinn kær / dregur sig heim til mín …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
20 (20v-21r (bls. 40-41))
Upp upp mín sál athuga nú
Titill í handriti

Sjötta vers. Sama tón

Upphaf

Upp upp, mín sál, athuga nú / æru og virðing þá …

Lagboði

Eilíft lífið er æskilegt

Athugasemd

2 erindi

Efnisorð
21 (21v-24r (bls. 42-47))
Vísur
Titill í handriti

Eftir fylgja einfaldar vísur

Athugasemd

12 vísur

21.1 (21v (bls. 42))
Annist þig drottinn um alla lífstíð
Upphaf

Annist þig drottinn um alla lífstíð / einkum þá veraldar þrautanna stríð …

Athugasemd

1 erindi

21.2 (21v-22r (bls. 42-43))
Svo þú þig huggir í samvisku þín
Upphaf

Svo þú þig huggir í samvisku þín / og sjáir að hérvistar ánauðin dvín …

Athugasemd

1 erindi

21.3 (22r (bls. 43))
Öll drottins fyrirheit uppfyllast þá
Upphaf

Öll drottins fyrirheit uppfyllast þá / er vér í dyrðinni herranum hjá …

Athugasemd

1 erindi

21.4 (22r (bls. 43))
Í þann hinn ágæta ununarsal
Upphaf

Í þann hinn ágæta ununarsal / á burtu héðan úr hryggðanna dal …

Athugasemd

1 erindi

21.5 (22v (bls. 44))
Drottinn best huggi og gleði þitt geð
Upphaf

Drottinn best huggi og gleði þitt geð / gæti þín ætíð og veri þér með …

Athugasemd

1 erindi

21.6 (22v (bls. 44))
Æskuna prýði með auðmjúkt dagfar
Upphaf

Æskuna prýði með auðmjúkt dagfar / aldurinn framleiði dyggðanna par …

Athugasemd

1 erindi

21.7 (23r (bls. 45))
Veiti þér drottinn að vera hjá sér
Upphaf

Veiti þér drottinn að vera hjá sér / vingan hans hjartgróin dafni hjá þér …

Athugasemd

1 erindi

21.8 (23r-23v (bls. 45-46))
Leiði þig drottinn við hægri hönd sín
Upphaf

Leiði þig drottinn við hægri hönd sín / hann einn sé allra best meinabót þín …

Athugasemd

1 erindi

21.9 (23v (bls. 46))
Allir vér samhuga í anda og trú
Upphaf

Allir vér samhuga í anda og trú

Athugasemd

1 erindi

21.10 (23v (bls. 46))
Leys þú oss, drottinn, þá best þóknast þér
Upphaf

Leys þú oss, drottinn, þá best þóknast þér / þessum frá heimi að burt reisum vér …

Athugasemd

1 erindi

21.11 (24r (bls. 47))
Til allrar umsjónar óska ég þér
Upphaf

Til allrar umsjónar óska ég þér / að eilífa Guðs náð þig taki að sér …

Athugasemd

1 erindi

21.12 (24r (bls. 47))
Enda svo fáort og óska að þér
Upphaf

Enda svo fáort og óska að þér / allvel það virðið af fálærðum mér …

Athugasemd

1 erindi

22 (24v (bls. 48))
Hylur oss næturhúmið
Titill í handriti

Eitt kvöldvers

Upphaf

Hylur oss næturhúmið / en himins bjarta sól …

Athugasemd

Vantar aftan af. Hér eru varðveitt 2 erindi heil og upphaf þess þriðja (9 vísuorð).

Efnisorð
23 (25r-28v (bls. 49-56))
Sálmur, óheill
Upphaf

… dreka dauðans hver / drottins ég treysti orðum …

Athugasemd

Vantar framan af. Byrjar í miðju erindi. Átta og hálft erindi varðveitt hér.

Efnisorð
24 (28v (bls. 56))
Óska ég henni sem á þetta kver
Upphaf

Óska ég henni sem á þetta kver / annist hana drottinn og taki sér …

Athugasemd

1 erindi

25 (29r-32r (bls. 57-63) )
Sálmur, óheill
Upphaf

… má ei þanninn mitt hús forn[00] / metast dýrt hjá Guði sín …

Athugasemd

Vantar framan af. Byrjar í 3. erindi. Fimmtán og hálft erindi varðveitt hér.

Efnisorð
26 (32r-37v (bls. 63-74))
Grimmdarreiði Guðs náði
Höfundur

Jón Eyjólfsson

Titill í handriti

Tuttugasti og fjórði sálmur. Tón: Einn herra e.b.

Upphaf

Grimmdarreiði Guðs náði / gremjast Ísraels lýð …

Lagboði

Einn herra ég best ætti

Niðurlag

Amen. Endir sálmanna

Skrifaraklausa

Skrifaðir og endaðir á því ári á ný 9. febrúar 1746 Halldór Jónsson.

Athugasemd

21 erindi. Nöfn sr. Hallgríms og Sigurðar Gíslasonar koma fyrir í textanum.

Efnisorð
27 (38r-42r (bls. 75-83))
Þig, herra, öndin heiðrar mín
Titill í handriti

Einn sálmur Davíðs. Tón: Herrann á nóa þe þ

Upphaf

Þig, herra, öndin heiðrar mín / hvað vegsamleg er dýrðin þín …

Lagboði

Herrann á nóa þe þ

Skrifaraklausa

Halldór Jónsson

Athugasemd

16 erindi

Efnisorð
28 (42r-42v (bls. 83-84))
Vitanlegt sé í þér vinur hér
Titill í handriti

Eitt vers. Tón: Uppleysa girnist ég h. f

Upphaf

Vitanlegt sé þér vinur hér / ef viltu fá það séð …

Lagboði

Uppleysa girnist ég h. f.

Athugasemd

1 erindi. Nafnið Þórríður Eiríksdóttir kemur fyrir í textanum.

Efnisorð
29 (42v (bls. 84))
Lesari góður, ljóst sé þér
Titill í handriti

Annað vers með sama tón

Upphaf

Lesari góður, ljóst sé þér / letrið sem girnist sjá

Lagboði

Uppleysa girnist ég h. f.

Athugasemd

Brot úr fyrsta erindi sálmsins (7 vísuorð). Nafnið Björg Rögnvaldsdóttir kemur fyrir í fyrsta erindinu. Vantar aftan af.

Efnisorð
30 (43r-53v (bls. 85-106))
Sálmur, óheill
Upphaf

… fyrir slær mig hugsun sú /að hafir mig frá þér rekið …

Skrifaraklausa

Þessi fyrirfarandi sálmur er ortur af þeim þungt freistaða og þjáða guðsmanni sr. Ólafi Einarssyni>, fyrrum sóknarpresti að Kirkjubæjarklaustri.

Athugasemd

Vantar framan af. Byrjar í 3. erindi af 30. Nótur fylgja á eftir sálminum.

Efnisorð
31 (54r-56v (bls. 107-112))
Harmagrát heyri þjóð
Titill í handriti

Einn sálmur ortur af lofk. Salom. 3 ka[p] Tón: Himinn, loft, hafið

Upphaf

Harmagrát heyri þjóð / hóf hann ein jómfrú góð …

Lagboði

Himinn, loft, hafið, jörð

Viðlag

Faðir, láttu mig finna / fögnuðinn andar minnar

Athugasemd

Vantar aftan af. Sautján erindi varðveitt hér. Viðlagið virðist breytast við 10. erindi og verður: Fegin v e a f f. Það breytist aftur við 12. erindi og verður: Fékk e þ g a f. Þessi breyttu viðlög eru aldrei skrifuð fullum stöfum.

Efnisorð
32 (57r-58v (bls. 113-116))
Nýarssálmur
Upphaf

… með blessan verði / Árið gamla nú úti er …

Viðlag

Vort nýja ár gef Kriste klár / kjör prýtt með blessan verði

Athugasemd

Nýárssálmur eftir sr. Guðmund Erlendsson. Hér eru erindi 2-11, samtals 10 erindi. Bókin hefur verið rangt inn bundin og blaðið sem vantar framan við er nú bl. 65 (bls. 129-130).

33 (58v-60v (bls. 116-120))
Upplít, mín sál, úr sorgum þeim
Titill í handriti

Ein önnur nýársvísa. Tón: Jesú Kriste, þig kalla ég á

Upphaf

Upplít, mín sál, úr sorgum þeim / sem þú átt við að stríða …

Lagboði

Jesú Kriste, þig kalla ég á

Athugasemd

11 erindi

34 (60v-62v (bls. 120-124))
Guðs börn nemi nýársljóð
Titill í handriti

Einn jólasálmur Tón: Syngið g. s[0]

Upphaf

Guðs börn nemi nýársljóð / ný tíðindin sæt og góð …

Lagboði

Syngið Guði sæta dýrð

Viðlag

Í Efrata, englar syngja gloría

Athugasemd

22 erindi

Efnisorð
35 (62v-64v (bls. 124-128))
Réttskínandi ríkdómsandi
Titill í handriti

Nokkrar lukkusamlegar óskir undir nafni æruverðagrar Ragnheiðar Jónsdóttur. Tón: Heyr þú það e

Upphaf

Réttskínandi ríkdómsandi / ráðsend stjórn yfir skírnar bandi …

Lagboði

Heyr þú það e

Athugasemd

Vantar aftan af. 18 erindi hér.

Efnisorð
36 (65r-65v (bls. 129-130))
Sálmur, óheill
Upphaf

… næst þeim stór fjöldi kvenna / gá að hvar búið höfðu um hann …

Athugasemd

Vantar framan af. Byrjar í miðju 10. erindi. Þrjú og hálft erindi varðveitt hér.

Efnisorð
37 (65v-66v (bls. 130-132))
Hvað mun vor auma ævi hér
Titill í handriti

Einn nýárssálmur ortur af sr. Guðmundi Erlendssyni. Tón: Ó Jesú þér æ viljum vér

Upphaf

Hvað mun vor auma ævi hér / annað en hlaup til grafar …

Lagboði

Ó Jesú þér æ viljum vér

Athugasemd

Aðeins fyrsta erindi varðveitt hér. Framhald sálmsins, erindi 2-11 eru á bl.57r-58v (bls. 113-116).

Á næsta blaði (bl. 66r, stendur: Þetta kver á ég Guðrún Oddsdóttir með réttu og er vel að því komin. Annó 1691.

Á bl. 66v er ártalið 1705.

.

38 (67r-95v (bls. 133-190))
Vikusálmar
Athugasemd

Vikusálmar. Vantar sunnudags- og mánudagssálma og framan af þriðjudagsmorgunsálmum. Fleiri eyður inní sálmunum hér og hvar. Bókin er rangt inn bundin og röð blaðanna er því mjög rugluð. Rétt röð væri: 133-136, 161-162, 159-160, 149-158, 163-164, 145-148, 141-144, 189-190, 165-188, 137-140.

Efnisorð
38.1 (67r (bls. 133))
Þriðjudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

… alla þurfandi auðga gjör / auktu og sjúkum heilsu kjör …

Athugasemd

Brot af síðasta erindi þriðjudagsmorgunsálms. Aðrir hlutar sálmsins eru ekki í handritinu.

Efnisorð
38.2 (67r-68v (bls. 133-136))
Ó, hvað mikil er miskunn sú
Titill í handriti

Þriðjudagskvöldsálmur. Með sama tón.

Upphaf

Ó, hvað mikil er miskunn sú / minn Guð í dag …

Athugasemd

Upphaf sálmsins, níu erindi. Miðhlutann vantar en síðasta og hálft næstsíðasta erindið eru á bl. 81r (bls. 161).

Efnisorð
38.3 (69r-70v (bls. 137-140))
Laugardagskvöldsálmur, brot
Upphaf

… en fram drottinn ég bið þig / álít þú nauðsyn mína …

Athugasemd

Laugardagskvöldsálmur, 9.-16. erindi hálft. Upphafið er á bl. 92v-94v (bls. 184-188). Niðurlagið er týnt.

Efnisorð
38.4 (71r-71v (bls. 141-142))
Fimmtudagskvöldsálmur, brot
Upphaf

… en heill blífi / lát hvörki sút né sótt …

Athugasemd

Niðurlag fimmtudagskvöldsálms, 6 og hálft erindi. Upphafið, 1.-18. erindi, er á bl. 73v-74v (bls. 145-148). Eitthvað vantar á milli.

Efnisorð
38.5 (71v-72v (bls. 142-144))
Maklega minn skapari
Titill í handriti

Föstudagsmorgunsálmur. Tón: Á einn Guð vil ég trúa

Upphaf

Maklega minn skapari / má ég nú lofa þig …

Lagboði

Á einn Guð vil ég trúa

Athugasemd

Upphaf sálmsins, 1.-3. erindi heil og hluti þess fjórða. Afgangurinn er á bl. 95r-95v (bls. 189-190, erindi 4-7) og 83r-84v (bls. 165-168, fimm síðustu erindin). Eitthvað vantar í milli 7. erindis og niðurlagsins.

Efnisorð
38.6 (73r (bls. 145))
Fimmtudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

… ðir trúr / og friðboði góður …

Athugasemd

Fimmtudagsmorgunsálmur, niðurlag, hluti næstsíðasta og síðasta erindið. Upphaf sálmsins er á bl. 79v (bls. 158, hluti 1. erindis) og 82r-82v (bls. 163-164, 1.-12. erindi). Eitthvað vantar í milli 12. erindis og niðurlagsins.

Efnisorð
38.7 (73r-74v (bls. 145-148))
Lof þitt, Guð, eilíft er
Titill í handriti

Fimmtudagskvöldsálmur. Með sama tón.

Upphaf

Lof þitt, Guð, eilíft er / allir það segi …

Lagboði

Sæll ertu sem þinn Guð

Athugasemd

Upphaf sálmsins, fyrstu átján erindin. Niðurlag sálmsins (sex og hálft erindi) eru á bl. 71r-71v (bls. 141-142). Eitthvað vantar á milli.

Efnisorð
38.8 (75r-76v (bls. 149-152))
Miðvikudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

… kna þú brestinn minn / láttu mig lukku rata …

Athugasemd

Niðurlag miðvikudagsmorgunsálms, hluti 8.-16. erindi. Upphaf sálmsins er á bl. 81r-81v (bls. 161-162, erindi 1, 2 og hálft þriðja), bl. 80r-80v (bls. 159-160, hálft 3. erindi, 4.-7. erindi, og upphaf 8. erindis.

Efnisorð
38.9 (76v-79v (bls. 152-158))
Lof dýrð og þakkir þýðar
Titill í handriti

Miðvikudagskvöldsálmur. Með sama tón.

Upphaf

Lof dýrð og þakkir þýðar / þer segi ég drottinn minn …

Lagboði

Gæsku Guðs vér prísum

Athugasemd

14 erindi

Efnisorð
38.10 (79v (bls. 158))
Ó, Guð, ég þakka þér
Titill í handriti

Fimmtudagsmorgunsálmur. Tón: Sæll ertu sem þinn Guð

Upphaf

Ó, Guð, ég þakka þér / þitt nafn ég lofa …

Lagboði

Sæll ertu sem þinn Guð

Athugasemd

Upphaf sálmsins, hluti fyrsta erindis. Framhaldið er á bl. 82r-82v (bls. 163-164, s. hl. 1. erindis-12. erindis og 73r (bls. 145, hluti næstsíðasta og síðasta erindi). Eitthvað vantar í milli 12. erindis og niðurlagsins.

Efnisorð
38.11 (80r-80v (bls. 159-160))
Miðvikudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

Mér margskyns mein / náð þín því öllu eyði …

Athugasemd

Hluti af miðvikudagsmorgunsálmi, hálft 3. erindi, 4.-7. erindi og hálft 8. Upphaf sálmsins er á bl. 81r-81v (bls. 161-162, frá upphafi til miðs þriðja erindis), og bl. 75r-76v (bls. 149-152, hluti 8. erindis til 16. erindis.

Efnisorð
38.12 (81r (bls. 161))
Þriðjudagskvöldsálmur, brot
Upphaf

… in eik sem allsterk er / að hvörri ég megi halla mér …

Athugasemd

Niðurlag þriðjudagskvöldsálms. Hálft næstsíðasta og síðasta erindið. Upphaf sálmsins er á bl. 67r-68v (bls. 133-136, 1.-9. erindi). Eitthvað vantar í milli.

Efnisorð
38.13 (81r-81v (bls. 161-162))
Lof sé þér, lífsins herra
Titill í handriti

Miðvikudagsomrgunsálmur. Tón: Gæsku Guðs vér prísum

Upphaf

Lof sé þér, lífsins herra, / ljós dagsins sé ég enn …

Lagboði

Gæsku Guðs vér prísum

Athugasemd

Upphaf miðvikudagsmorgunsálms, tvö og hálft erindi. Niðurlag sálmsins er á bl. 80r-80v (bls. 161-162, frá miðju 3. erindi til upphafs 8. erindis), og bl. 75r-76v (bls. 149-152, hluti 8. erindis til 16. erindis).

Efnisorð
38.14 (82r-82v (bls. 163-164))
Fimmtudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

… mér allvært að sofa. / Mergð stærð og margfjöl[d]inn …

Athugasemd

Fimmtudagsmorgunsálmur, hluti 1. erindis til 12. erindis. Upphaf sálmsins er á bl. 79r (bls. 158, fyrri hluti 1. erindis) og niðurlag (eitt og hálft erindi) á bl. 73v (bls. 146). Eitthvað vantar milli 12. erindis og niðurlagsins.

Efnisorð
38.15 (83r-84v (bls. 165-168))
Föstudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

… Ó, Guð, í himna höllu / heyrir þú bæn og nauðsyn sér …

Athugasemd

Niðurlag föstudagsmorgunsálms, 5 síðustu erindin.. Upphaf sálmsins er á bl. 71v-72v (bls. 142-144, fyrsta til miðs fjórða erindis) og bl. 95r-95v (bls. 189-190, hluti 4. erindis til fyrri hluta 7. erindis). Eitthvað vantar á milli.

Efnisorð
38.16 (84v-88v (bls. 168-176))
Þú Guð í þínu ríki
Titill í handriti

Föstudagskvöldsálmur. Með sama lag.

Upphaf

Þú Guð í þínu ríki / þér einum ber kvöldoffur mitt …

Lagboði

Á einn Guð vil ég trúa

Athugasemd

13 erindi

Efnisorð
38.17 (88v-92v (bls. 176-184))
Hvörnin kann ég nú nauðberinn
Titill í handriti

Laugardagsmorgunsálmur. Tón: Jesú Kriste, þig kalla ég

Upphaf

Hvörnin kann ég nú nauðberinn

Lagboði

Jesú Kriste, þig kalla ég

Athugasemd

15 erindi

Efnisorð
38.18 (92v-94v (bls. 184-188))
Lof sé þér drottinn lof sé þér
Titill í handriti

Laugardagskvöldsálmur. Með sama lag.

Upphaf

Lof sé þér drottinn lof sé þér / lof sé þér minn skapari…

Lagboði

Jesú Kriste, þig kalla ég

Athugasemd

Upphaf sálmsins, 1.-8. erindi. Framhaldið, 9.-16. erindi hálft, eru á bl. 68r-70v (bls. 137-140). Eitthvað vantar þar fyrir aftan.

Efnisorð
38.19 (95r-95v (bls. 189-190))
Föstudagsmorgunsálmur, brot
Upphaf

… lét upp himna hallir / hans börn nú erum vér …

Athugasemd

Hluti úr föstudagsmorgunsálmi, hluti 4. erindis til fyrri hluta 7. erindis. Upphaf sálmsins er á 71v-72v (bls. 142-144, og niðurlagið (síðustu 5 erindin) á bl. 83r-84v (bls. 165-168).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 95 + i blöð (100-103 mm x 75-80 mm).
Tölusetning blaða
Blaðsíðumerking með blýanti, 1-190.
Ástand

Blöð vantar í bókina á eftir bl. 7, 8, 16, 24, 28, 42. Óvíst er um fjölda týndra blaða á hverjum stað.

Á undan bl. 67 vantar blöð, óvíst hversu mörg. Eitt blað vantar á eftir bl. 68, 74, 82.

Rangt inn bundið. Rétt röð blaða: 1-56, 65, 57-64, 66-68, 81, 80, 75-79, 82, 73-74, 71-72, 95, 83-94, 69-70.

Ástand handritsins er gott og það læsilegt. Blöðin lítið skemmd.

Textinn skerðist sumstaðar smávægilega vegna afskurðar, t.d. á bl. 31, 36-37, 41-42, 45-46, 49, 52-56.

Skrifarar og skrift
Sex hendur, misafkastamiklar.

I: Bl. 1r-14v, 24v-28v: Óþekktur skrifari, tvær skriftargerðir, aðallega blendingsskrift en einnig fljótaskrift.

II: Bl. 15r-16v, kansellískrift.

III: Bl. 17r-24v. Óþekktur skrifari, e.k. fljótaskrift með kansellíeinkennum.

IV: Bl. 28r-65v. Halldór Jónsson (sbr. 37v), kansellískrift.

V: Bl. 66r. Guðrún Oddsdóttir, kansellískrift.

VI: Bl. 67r-95v. Óþekktur skrifari, kansellískrift.

Skreytingar

Skrautrammi á bl. 66rutan um nafn eiganda.

Þrjár rósir á bl. 66v.

Skrautbekkir á milli sálma á bl. 2v, 60v, 62v og 65v.

Flúraður upphafsstafur á bl. 7v, þó í sama bleklit og textinn. Upphafsstafir á nokkrum stöðum skreyttir með punktum í kringum stafinn, á bl. 24v, 32r, 54r, 58v, 60v, 62v og 65v.

Nótur
Nótur koma fyrir á bl. 53v á eftir sálmi Ólafs Einarssonar Himneski faðir, heyr þú mig (sem byrjar á þriðja erindi).
Band

Óvíst um aldur bandsins (111 mm x 90 mm). Pappaspjöld klædd pappír með svörtu og gulu marmaramynstri. Leður á hornum og kili. Kjölurinn með gylltum þverröndum og skrautbekkjum. Saurblöð tilheyra bandinu

Fylgigögn

Bundið með bókinni fremst er seðill með efnisyfirliti með hendi Páls Pálssonar stúdents.

Með bókinni er seðill Gríms M. Helgasonar með skýringum á blaðarugli í síðasta hluta bókarinnar.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17.-19. aldar í skrá um handrit Landsbókasafns. Á bl. 37v kemur fram að kvæði sem endar þar er skrifað 9. febrúar 1746. Guðrún Oddsdóttir skrifar nafn sitt á bl. 66r árið 1691 og ártalið 1705 er skrifað á 66v.9. febrúar 1746 Halldór Jónsson.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Karl Ó. Ólafsson skráði sumarið 2010.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Náðugi Guð í nafni þínu
  2. Guð minn gefi mér að sofna vært
  3. Hjónin sem sitja hér við borð
  4. Gefðu Jesús ending góða allra nauða
  5. Yður nú öflug Guðs verndarhönd
  6. Bið ég föður blíðan náða
  7. Lifðu æ í friði fríðum
  8. Óska ég þér af hjarta hér
  9. Gefðu mér, Jesús, góða nótt
  10. Herrann Jesús heillin allra hlífarskjól
  11. Sálmur, óheill
  12. Sálmur, óheill
  13. Öll þegar mannleg aðstoð dvín
  14. Meistarinn hæsti minn Jesús besti
  15. Eilífa veit oss æðsta náð
  16. Ó hvað fánýtan hefur óm
  17. Ennþá síðasta öngvit hér
  18. Hvör er svo blindað hyggju þel
  19. Þá dauðans rökkur drottinn kær
  20. Upp upp mín sál athuga nú
  21. Vísur
    1. Annist þig drottinn um alla lífstíð
    2. Svo þú þig huggir í samvisku þín
    3. Öll drottins fyrirheit uppfyllast þá
    4. Í þann hinn ágæta ununarsal
    5. Drottinn best huggi og gleði þitt geð
    6. Æskuna prýði með auðmjúkt dagfar
    7. Veiti þér drottinn að vera hjá sér
    8. Leiði þig drottinn við hægri hönd sín
    9. Allir vér samhuga í anda og trú
    10. Leys þú oss, drottinn, þá best þóknast þér
    11. Til allrar umsjónar óska ég þér
    12. Enda svo fáort og óska að þér
  22. Hylur oss næturhúmið
  23. Sálmur, óheill
  24. Óska ég henni sem á þetta kver
  25. Sálmur, óheill
  26. Grimmdarreiði Guðs náði
  27. Þig, herra, öndin heiðrar mín
  28. Vitanlegt sé í þér vinur hér
  29. Lesari góður, ljóst sé þér
  30. Sálmur, óheill
  31. Harmagrát heyri þjóð
  32. Nýarssálmur
  33. Upplít, mín sál, úr sorgum þeim
  34. Guðs börn nemi nýársljóð
  35. Réttskínandi ríkdómsandi
  36. Sálmur, óheill
  37. Hvað mun vor auma ævi hér
  38. Vikusálmar
    1. Þriðjudagsmorgunsálmur, brot
    2. Ó, hvað mikil er miskunn sú
    3. Laugardagskvöldsálmur, brot
    4. Fimmtudagskvöldsálmur, brot
    5. Maklega minn skapari
    6. Fimmtudagsmorgunsálmur, brot
    7. Lof þitt, Guð, eilíft er
    8. Miðvikudagsmorgunsálmur, brot
    9. Lof dýrð og þakkir þýðar
    10. Ó, Guð, ég þakka þér
    11. Miðvikudagsmorgunsálmur, brot
    12. Þriðjudagskvöldsálmur, brot
    13. Lof sé þér, lífsins herra
    14. Fimmtudagsmorgunsálmur, brot
    15. Föstudagsmorgunsálmur, brot
    16. Þú Guð í þínu ríki
    17. Hvörnin kann ég nú nauðberinn
    18. Lof sé þér drottinn lof sé þér
    19. Föstudagsmorgunsálmur, brot

Lýsigögn