„Steingrimiana, þ.e. nokkrar ljóðasamstæður á íslensku og latínu“, eftir Steingrím biskup, „föður hans, síra Jón og stöku menn aðra“; nafngreindir eru síra Jón Þorláksson á Bægisá og síra Torfi Jónsson á Breiðabólstað.
Pappír.
Úr safni Steingríms Jónssonar biskups og er víða ritað á sendibréf.
Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 9. september 2020.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 33-34.