Einkabréfabók Steingríms Jónssonar, síðar biskups, árin 1792-1800 og reikningabók sama 1790-1800.
Pappír.
Lbs 64-66 8vo, úr safni Steingríms Jónssonar biskups.
Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 1. apríl 2020.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 17.