Ýmislegt efni: "Íslendingadags-málið" 1897; þýðing á grein úr "The Detroit Free Press" um Vínland (brot). Sitthvað er varðar efni og þrætur í vestur-íslensku blöðunum um 1890. Dönsk málfræði rituð eftir Jósef J. Björnsson skólastjóra á Hólum, 1883. Stíll um hagfræði, sem Ásgeir samdi fyrir próf í Hólaskóla sama ár.
Eftirrit bréfa frá Ásgeiri til Ásgeirs F. Thorsteinssonar (systursonar hans) í Garðar, N-Dakóta (1), Baldvins L. Baldvinssonar ritstjóra í Winnipeg (3), J. M. Johnson (íslensks) í Calgary (1), Jakobs Líndal (bróður hans) í Mountain, N-Dakóta (1), Jóns Ólafssonar ritstjóra í Winnipeg (1), Jóns Stefánssonar í Winnipeg (1), Jósefs Jónatanssonar í Miðhópi í Víðidal, V-Hún (1), Sigurðar E. Sverrissonar sýslumanns í Strandasýslu (1), Stephans G. Stephanssonar skálds (1), Sveins Björnssonar í Seattle (1) og "Busines Manager" í Heimskringlu í Winnipeg (1). Hér er einnig afrit af bréfum frá Jósafat Jónatanssyni (bróður Ásgeirs, í Reykjavík) til Jakobs Líndal (bróður síns) í Mountain, N-Dakóta (1) og frá Jónasi A. Sigurðssyni presti og skáldi í Vesturheimi til óþekkts viðtakanda.
Pappír.
Jóhannes Ásgeir Jónatansson Líndal
Gjöf 1953 frá Ásmundi Jónssyni trésmíðameistara í Reykjavík. Afhent af Snæbirni Jónssyni bóksala.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 7. janúar 2019 ; úr óprentaðri handritaskrá.