Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 2477 4to

Sagna- og rímnakver ; Ísland, 1868-1873

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-43v)
Ambáles saga
2 (43v-56v)
Vilmundar saga viðutan
Skrifaraklausa

Enduð á þrettándadagsnótt 1868 af Jóni Björnssyni á Hafursá, 48 ára gömlum (43v).

Efnisorð
3 (57r-84v)
Rímur af Maroni sterka
Höfundur
Upphaf

Litars flæða mín vill mús / máls úr skreppa holu …

Skrifaraklausa

Endaðar rímurnar þann 30. marts 1870 af Jóni Björnssyni, 51 árs (56v).

Athugasemd

Blaðsíður 139-140 og 149-150 vantar í handritið

Efnisorð
4 (85r-123r)
Sigurðar saga þögla
Skrifaraklausa

Enduð sagann á þorradaginn 1871 af Jóni Björnssyni, 52 ára (123r).

Efnisorð
5 (124r-135v)
Rímur af Úlfi Uggasyni
Upphaf

Suðra skeið af sagnar mið / sest af ræðu stóli …

Skrifaraklausa

Endaðar rímurnar 30. desember 1873 af Jóni Björnssyni, 50 og 5 ári (135v).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
135 blöð (206 mm x 165 mm)
Umbrot

Eindálka

Griporð

Ástand

Blaðsíður 139-140 og 149-150 vantar í handritið.

Handrit illa farið og sums staðar laust í bandinu.

Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Jón Björnsson

Skreytingar

Mannamynd: 46r, heilsíðumynd, svart og blátt blek, í efra horn hægra megin er skrifað: Vilmundur viðutan.

Upphafsstafir með pennadregnu skrauti.

Upphafsstafir með mannamyndum: 15r, 16v, 19v, 24v, 29v, 34v, 36r, 44v, 82v, 92r, 105v, 106r, 119v og 121v.

Band

Innbundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1868-1873.
Ferill

Lbs 2468-2483 4to, gjöf úr dánarbúi Ólafs Marteinssonar 1934.

Í bandi handritsins hafa verið notuð blöð sem innihalda annars vegar jarðarmat í Vallnahreppi (nafn jarðarinnar er ólæsilegt) frá árinu 1856 og hins vegar þrjú sendibréf frá Birni Björnssyni til bróður síns, eitt þeirra er skrifað að Þorgrímsstöðum. Í handritaskrám er Björn þessi sagður vera búandi á Breiðabólsstöðum á Álftanesi en við skráningu á handritinu árið 2016 var skriftin á bréfunum borin saman við handritin ÍB 422 8vo og ÍB 542 8vo, sem eru eiginhandarrit Björns Björnssonar og var það samdóma álit tveggja starfsmanna handritasafns að sendibréfin væru ekki skrifuð af honum. Líklegra sé að bréfritarinn sé Björn, bróðir Jóns, skrifara handritsins.

Nafn í handriti: Sigmundur Jónsson Kleif.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir skráði 9. ágúst 2016 ; Handritaskrá, 3. b..
Lýsigögn
×

Lýsigögn