„Rímur af Flóres kóngi svarta og sonum hans“
„Lýðum þykir það lista plag, lengi vel til standa ...“
„Hér skrifast rímur af Rúnzivelsþætti, ortar af Þórði Strjúgi“
„Mörg hafa fræðin, meistarar diktað fróðir ...“
„Hér skrifast rímur af Herrauði og Bósa ortar af sál. Guðmundi Bergþórssyni“
„Berlings læt ég báru jór, brík fyrir öldu ljóma ...“
„Rímur af Hálfdáni brönufóstra kveðnar af Snorra Björnssyni á Húsafelli“
„Mín þó fljúti mála ör, mjó af sagna boga ...“
„Skrifað orðrétt eftir skáldsins eiginhandarriti“ (bl. 128v)
„Hér skrifast rímur af Balant Amirale og syni hans Ferakut kveðnar af Guðmundi Bergþórssyni“
„Rímur af Otúel kveðnar af Guðmundi sál. Bergþórssyni“
„Fjölnis læt ég flæðar gamm, í flegðu veðri skría ...“
Pappír
Guðrún Magnúsdóttir átti handritið (sbr. bl. 81v og 211v).
Lbs 1334-1406 4to eru úr dánarbúi dr. Jóns Þorkelssonar sem keypt var 1. október 1904.
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 24. júní 2020
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi, bls. 465.