„Hið merkilegasta út af annálabók Odds Eiríkssonar þar annálar Björns Jónssonar á Skarðsá endast.“
Hið merkilegasta útaf annála bók Odds Eiríkssonar, Fitja annálum 1693-1719, þar annálar Björns Jónssonar á Skarðsá endast. Colligerað og þar viðbætt mörgu af síra Jóni Halldórssyni.
Með hendi síra Vigfúsar Jónssonar, viðaukar utanmáls með hendi síra Jóns Halldórssonar.
Pappír.
Fremst er yngra titilblað.
Ísland, 1730.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 9. mars 2020 ;
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi , bls. 163-164.