„Íslensku laga önnur bók um trúarbrögðin og geistlegheitin samantekin af vice lögmanni Jóni Ólafssyni“
„Önnur bók íslensku lögbókar Christiani qvinti“
Önnur bók íslensku lögbókar Christiani qvinti eins og hún var samþykkt af Þórði biskupi Þorlákssyni og próföstum í Skálholts biskupsdæmi 8. júlí 1689.
Þar með fylgir ein tafla til að finna tíundagjald, fé sektir í þeirri annarri bók og bannsettir menn.
„Sermon um Kristin rétti, hver að sé bestur af þeim sem menn hafa hér í landi brúkað. Author Mag: Jón Árnason biskup“
Þar með fylgir Um kristin rétti Ass. Árni Magnússon, síra Jón Halldórsson í Hítardal (um sama) og P. Widalin de voce jólafasta
Pappír.
Fremst er yngra titilblað og efnisyfirlit.
Ísland, 17. og 18. öld.
Úr safni Hannesar biskups.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 7. nóvember 2019 ;
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi , bls. 131.