Skjöl, flest úr fórum síra Halldórs Jónssonar að Hofi í Vopnafirði, flest varðandi hann, svo sem testimonia og embættisbréf (ein predikun er þar með hans hendi), eða vandamenn (börn hans) og tengdaforeldra, en nokkur embættisskjöl varðandi aðra (merkast er skiptagerningur eftir Þorstein Guðmundsson í Krossavík) og loks erfiljóð frá 20. öld.
Ísland, á 19. og 20. öld.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 8.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 6. júlí 2015.