Böggull með bréfasafni o.fl.; þar í eru sendibréf frá síra Gunnari Pálssyni til Hálfdans Einarssonar, Halldórs Hjálmarssonar og síra Benedikts Pálssonar; til síra Gunnars frá Skúla fógeta, Bjarna landlækni, síra Birni Halldórssyni og Teiti Jónssyni stúdent. Aftan við eru ýmsar smágreinar um fornfræði eftir síra Gunnar, Finn biskup og Grunnavíkur-Jón, og orðatíningur eftir síra Gunnar.
Pappír.
Lbs 276-315 fol er úr safni dr. Jóns Þorkelssonar.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , bls. 97-98.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 10. júlí 2014.