Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 42 fol.

Ættartölur og ævisögur

Innihald

Ættartölur og ævisögur
Athugasemd

Með hendi síra Jóns Erlendssonar í Villingaholti og viðaukum með hendi síra Hannesar Björnssonar í Saurbæ o.fl.

Ævisögur Ögmundar biskups Pálssonar, Gissurar Einarssonar, Marteins Einarssonar, Gísla Jónssonar, Odds Einarssonar, Gísla Oddssonar, Jóns Arasonar, Ólafs Hjaltasonar, Loðins lepps, Daða Guðmundssonar, Hannesar Eggertssonar, Guðna Jónssonar, Páls Jónssonar á Skarði, Sturlu Þórðarsonar og Orms lögmanns Sturlusonar, Guðbrands biskups Þorlákssonar, Teits Þorleifssonar (og Sveinsstaðareið), Þorleifs Árnasonar og Björns Þorleifssonar.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1 // Mótmerki: Fangamark CC (á víð og dreif á blöðum 1-94).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Kringla (?) // Ekkert mótmerki (37).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 2 // Mótmerki: Fangamark IC (45-46).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Skjaldarmerki með borða (DORAK) Anno 1660 // Ekkert mótmerki (95, 97, 106).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Skjaldarmerki með hornum, blómum og bókstafnum C // Ekkert mótmerki (143, 144, 145 151, 153, 155, 157, 160-161).

Blaðfjöldi
vi + 161 blöð + i (301 mm x 191 mm).
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking.

Blaðmerkt fyrir myndatöku.

Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er um 263-265 mm x 150-155 mm.

Línufjöldi er 33-36.

Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu; skrifarar:

Jón Erlendsson

Hannes Björnsson (viðaukar með hans hendi)

Band

Band frá því eftir 1850 (310 mm x 205 mm x 42 mm).

Pappaspjöld með lérefti. Saurblöð tilheyra nýju bandi.

Páll Pálsson stúdent batt inn.

Fylgigögn

Titilsíða með hendi Páls Pálssonar á saurblaði 2r.

Fastur seðill frá Steingrími Jónssyni á saurblaði 1v.

Uppruni og ferill

Ferill

Úr handritasafni Steingríms Jónssonar biskups. 1704 hefur hún verið í eign Sigurðar Sigurðssonar eldra. Mun hún vera afrit af ættartölubók síra Þórðar Jónssonar í Hítardal, sem Brynjólfur biskup Sveinsson fékk léða til að afrita, og mundi þá þessi bók vera stofninn í ættartölubók Jóns Ólafssonar á Lambavatni.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar voru keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Jón Kristinn Einarsson bætti við skráningu 20. september 2018; Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 2017.

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , bls. 25.

Viðgerðarsaga

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn