Með hendi síra Jóns Erlendssonar í Villingaholti og viðaukum og marginalia með hendi Brynjólfs biskups Sveinssonar, síra Torfa Jónssonar í Gaulverjabæ, síra Hannesar Halldórssonar o.fl.
Með hendi síra Hannesar Halldórssonar í Reykholti
Pappír með vatnsmerkjum.
Á blöðum 1-2 er ekkert vatnsmerki.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með tveimur krosslögðum sverðum og fangamarki ML // Ekkert mótmerki ( 3-178).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 1 // Ekkert mótmerki (184-190).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 2 // Mótmerki: AR (191-215).
Gömul blaðsíðumerking.
Leifar af gamalli blaðmerkingu (190-215).
Blaðmerkt fyrir myndatöku.
Eindálka.
Leturflötur er um 282-294 mm x 145-165 mm.
Línufjöldi er 31-44.
Band frá því eftir 1844: á blaði 2r er viðgerðarbútur þar sem ártalið 1844 kemur fyrir (330 mm x 200 mm x 50 mm).
Pappaspjöld með lérefti. Saurblöð tilheyra nýju bandi.
Páll Pálsson stúdent batt inn.
Titilsíða með hendi Páls Pálssonar á saurblaði 2r.
Fastur seðill með hendi Páls Pálssonar milli blaða 190 og 191 .
Úr handritasafni Hannes Finnssonar biskups. Brynjólfur biskup hefur átt I, síðan hefur það handrit komist í eigu Torfa prests í Gaulverjabæ og með Ragnheiði dóttur hans til Einarsness, en þaðan til Hannesar prests Halldórssonar og frá honum til þeirra feðga Finns og Hannesar biskupa, en úr handritasafni Hannesar biskups er bókin svo komin. Þennan feril má rekja samkvæmt áritunum á 1. bl. í hdr.
Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.
Jón Kristinn Einarsson bætti við skráningu 14. september 2018 ; Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 2017.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , bls. 23.