Skráningarfærsla handrits

KBAdd 6 fol.

Hafgeirs saga Flateyings ; Danmörk, 1700-1799

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(55v)
Hafgeirs saga Flateyings
Titill í handriti

Hér hefur sögu af Hafgeiri Flateying

Upphaf

Artus hefur konungur heitið …

Niðurlag

… og eru frá honum komnar stórar ættir í Noregi.

Baktitill

Höfum vér eigi heyrt fleira af hans frægðarverkum og lúkum vér hér sögunni af Hávarði Flateying.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 55 + i blöð (310 mm x 198 mm).
Tölusetning blaða
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-110.
Kveraskipan

Sjö kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-14, 3 tvinn.
  • Kver III: bl. 15-22, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 23-30, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 31-40, 5 tvinn.
  • Kver VI: bl. 41-47, 3 tvinn og stakt blað.
  • Kver VII: bl. 48-55, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 225 mm x 135 mm.
  • Línufjöldi er 26.
  • Sögulok enda í totu.

Skrifarar og skrift

Eiginhandarrit Þorleifs Magnússonar Ísfjörðs, snarhönd.

Skreytingar

Lítill bókahnútur í sögulok.

Band

Band frá 19. öld (314 mm x 202 mm x 13 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnleitu marmaramynstri. Leður á kili og hornum. Upphleyptar rendur á kili og gylling. Titill með gylltu á kili. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju.

Fylgigögn

Fastur seðill fremst með hendi skrifara þar sem segir að handritið sé skrifað eftir skinnbók frá 12. öld sem hafi komið frá Íslandi árið 1774.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Kålund tímasetur það til síðari hluta 18. aldar (Katalog 1900:435).

Ferill

Sjá nr. 251 b fol. í uppboðsskrá Bernhards Møllmann 1783.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Morten Grønbech gerði við í ágúst til nóvember 1995. Ekki hreyft við bandi en lagt í nýja öskju. Lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn