Kaupbréf fyrir hálfum Látrum í Aðalvík, sem Jón Vilhjálmsson selur Sæmundi Árnasyni fyrir Hanhól í Bolungarvík; enn fremur selur Jón Sæmundi Hanhól aftur, að því til skildu að hann megi sitja þar svo lengi sem vill. Kaupin gerð 28. desember 1590, en bréfið skrifað 17. mars 1600 (á Eyri í Skutulsfirði). Frumrit.
Skinn.
Tvö innsigli hafa verið fyrir bréfinu, bæði glötuð.
Athugað fyrir myndatöku október 2014.
Myndað í nóvember 2014.
Myndað fyrir handritavef í nóvember 2014.